Þegar konur eldast hahaha eins gott að vera varkár...

Þegar konur eldast.
Grein eftir Jón Jónsson

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast
verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær
voru ungar. Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana. Sumar
konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.

Ég heiti Jón. Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand
varðandi konuna mína – hana Siggu. Þegar ég settist í helgan stein fyrir
nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram
hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði
okkar hjóna gangandi. Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að
aldurinn fór að sjást á henni.

Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni. Þó
hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í
hálftíma áður en hún fer að elda matinn. Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn
segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar
maturinn er kominn á borðið. Ég borða venjulega hádegismat í
"Heiðursmannagrillinu" í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á
dagskránni að fara út að borða.

Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða. Nú
er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri
það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir
þvoi sig ekki sjálfir. Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það
virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.

Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún
því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í
matartímanum. En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu,
svo ég brosi bara og býð fram hvatningu. Ég segi henni bara að dreifa þessu
á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni
hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi (
þið vitið hvað ég meina ). Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri
kostum.

Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri
hvíldarstundir. Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis
hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er
sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum
appelsínusafa og setjast í smástund. Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég
hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.

Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð
hana Siggu mína. Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi.
Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt !
Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast.

En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og
minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast – lít ég svo á að þetta
hafi verið þess virði að setja á blað. Við megum ekki gleyma því að við
fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.

Kveðja,

Jón Jónsson


Athugasemd ritstjóra:

Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi.
Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha
golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af
handfanginu út, og við hliðina var sleggja.

Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem
eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var
þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi
einhvern veginn, án þess að gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin
golfkylfu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Sigvarður. Betra er að búa undir sífeldum þakleka en með honum  klikkaða Jóni.  OJbara.  En svona í alvöru, fyndið  

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.2.2008 kl. 17:41

2 Smámynd: Sigvarður Hans Ísleifsson

ef maður spáir svona í því, að þá er Jón Jónsson svakaleg karlremba, ætlast til þess að konan geri allt ... en þetta á víst að vera einhver svona karlrembu húmor þar sem konan fær nóg af honum með fyrrgreindum afleiðingum...

Sigvarður Hans Ísleifsson, 21.2.2008 kl. 19:46

3 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Haha

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 21.2.2008 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband