Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Brandari dagsins..

þessi brandari er svoldið nettur en mæli með því fyrir viðkvæmar helgislepjur að láta hann eiga sig hahahahaha....

Ég held að eitthvað alvarlegt ami að mér,” sagði Guðmundur við lækninn sinn.
“Annað eistað á mér er orðið blátt á litinn.”
Læknirinn skoðaði Guðmund vandlega og komst að þeirri niðurstöðu að það yrði
að fjarlægja eistað til að bjarga lífi hans.
Læknirinn var þó góða stund að sannfæra Guðmund um nauðsyn þess.

Tveimur vikum eftir aðgerðina kom Guðmundur aftur og sagði skelfdur við
lækninn að nú væri hitt eistað orðið blátt.
“Við neyðumst til að nema það í burtu líka,” sagði læknirinn alvarlegur á
svip. “Annars geturðu dáið.”

Tvær vikur liðu og enn var Guðmundur mættur til læknisins.
“Nú hlýtur eitthvað hryllilega alvarlegt að ama að mér því lillinn er orðinn
kol blár á litinn,” sagði Guðmundur á barmi taugaáfalls.
Læknirinn skoðaði hann vandlega og felldi síðan þann dóm að ef Guðmundur
ætlaði að halda lífi yrði að skera vininn af.
“Hvernig fer ég að því að pissa ef þú skerð hann af,” kveinaði Guðmundur.
“Við setjum bara plastslöngu í staðinn,” sagði læknirinn hughreystandi.
Síðan fór Guðmundur í aðgerðina og allt gekk vel.

Innan nokkurra vikna var hann þó, enn og aftur, mættur á skrifstofu
læknisins. Nú var hann reiðilegur á svip.
“Læknir, plastslangan er orðin blá! Hvað er eiginlega í gangi?”
Læknirinn fórnaði höndum af undrun og tók til við að rannsaka Guðmund.
“Hmmmm,” sagði hann eftir smástund.
“Getur verið að gallabuxurnar þínar láti svona mikinn lit?” 


Kraftur Guðs sem frelsar okkur...

   

Kraftur Guðs sem frelsar okkur...

Sigvarður Halldóruson

Það sem mig langar að skoða er afhverju Páll segir að það sé kraftur Guðs sem frelsar okkur...

Róm.1:16Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir, Gyðinginn fyrst og aðra síðan.

Sumir velta því eflaust fyrir sér hvað er það að fyrirverða sig fyrir trúnna. Það sem þetta á við er skömm, að skammast sín fyrir að trúa á frelsarann. Hver kannast ekki við það að hafa oft ekki þorað að segja frá trú sinni. En það er bara í þeim tilvikum þar sem einstaklingar hafa ekki kraft til að standa fyrir trú sinni líkt og Pétur gerði þegar hann afneitaði Jesú. En Páll segir að það sé óþarfi að skammast sín, vegna þess að það sé kraftur Guðs sem frelsar okkur en ekki okkar eigin verk. Eina sem við getum gert við þessa frelsisgjöf er að meðtaka hana af náð.

Post.1:8En þér munuð öðlast kraft er heilagur andi kemur yfir yður og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar."

Jesús sagði við lærisveina sína að þeir myndu öðlast kraft er Heilagur Andi kæmi yfir þá. Það var það sama með lærisveinana og Jesús að þeir byrjuðu ekki að starfa fyrr en kraftur Guðs kom yfir þá og það var ekki fyrr en Heilagur Andi kom og fyllti þá. Það gildir það sama í dag, við getum ekkert gert eða okkur verður ekkert ágengt með því sem við gerum í Guðsríkinu nema að meðtaka Heilagan Anda inn í líf okkar og starfa í hans krafti.

Sumar þýðingar hafa þýtt þetta þannig að orðið að fyrirverða kemur ekki fyrir, heldur er þetta útlagt á þann hátt: Ég er stolltur að geta boðað fagnaðarerindið... Það er líka það sem við eigum að vera, stollt að tilheyra konungnum Jesú Kristi... Jesús sagði líka ef við myndum skammast okkur fyrir hann að þá myndi hann skammast sín fyrir okkur, frammi fyrir Föðurnum og englum himins.

En að kraftinum. Eitt af því skemmtilegasta sem mér finnst að skoða er að skoða þá staði þar sem er vitnað í kraft Guðs og það þurfi að hleypa Guði að þegar við erum að starfa fyrir hann. Því að okkar kraftur megnar ekkert en kraftur Guðs getur allt. Og þegar maður fær þessa opinberun að það sé Guð sem vinnur verkið en ekki við að þá fara hlutirnir að gerast.

Fil.2:13Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar.

Ein af þeim ástæðum sem voru til þess að Páll skammaðist sín ekki fyrir að flytja orð Guðs var vegna þess að hann vissi það að orðið væri lifandi og máttugt.

Heb.4:12Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.

Það er vegna þess að orð sannleikans sem er talað að við förum að endurfæðast. Þá er átt við að við þurfum að nærast á orði Guðs til að breytast og bakvið orð Guðs er kraftur hans sem breytir okkur, þegar við höfum meðtekið Heilagan Anda inn í líf okkar.

Jak.1:18Hann ákvað að láta orð sannleikans vekja okkur til lífs til þess að við skyldum vera frumgróði sköpunar hans.

1.Pét.1:23Þið eruð endurfædd, ekki af forgengilegu sæði heldur óforgengilegu, fyrir orð Guðs sem lifir og varir. 24Því að allir menn eru sem gras og öll vegsemd þeirra sem blóm á grasi, grasið skrælnar og blómið fellur. 25En orð Drottins varir að eilífu.
Og þetta orð er fagnaðarerindið sem ykkur hefur verið boðað.

Eflaust gæti komið upp í huga þinn hvað er óforgengilegt og hvað er forgengilegt. Forgengilegt er eitthvað sem er stundlegt en óforgengilegt er eitthvað sem er eilíft. Það sem er átt við að Orð Guðs er eilíft og varir að eilífu.  

Fyrir trúnna og Orðið að þá varðveitumst við, fyrir kraft Guðs til frelsunar. Fólk frelsast þegar það fær að heyra orð Guðs. Þegar orð Guðs er talað að þá gerist eitthvað í lífi okkar og þegar Orð Guðs hefur unnið sitt verk í hjarta okkar að þá verðum við meðtækilegt fyrir því að veita Jesú Kristi viðtöku sem frelsara okkar. Þegar við höfum svo meðtekið Krist inn í líf okkar og tekið það hlýðniskref að skírast til Jesú Krists að þá fáum við  að gjöf Heilagan Anda. Þá fáum við kraft inn í líf okkar og Orðið fer að vera meira lifandi fyrir okkur.

1.Pét.1.5Kraftur Guðs varðveitir yður sem trúið til þess að þér öðlist hjálpræðið sem albúið bíður þess að opinberast á efsta degi.

Við sjáum það aftur að það er kraftur Guðs sem varðveitir okkur. Þeir sem lifa í krafti Guðs eru þeir sem varðveitast. Ég veit ekki dæmi þar sem menn hafa verið í kraftinum og afneitað honum á sama tíma eða vilst frá. En ég veit dæmi um fólk sem dofnar í samfélaginu og fjarlægist Guð og viðheldur ekki kraftinum í lífi sínu og fjarar út. Þannig að mikilvægur lykill af því að varðveitast í trúnni er að lesa orðið og lifa í Krafti Heilags Anda.

Efes.1:19og hve kröftuglega hann verkar í okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli, kröftugi mátturinn 20sem hann lét koma fram í Kristi er hann vakti hann frá dauðum og lét hann setjast sér til hægri handar á himnum,

Krafturinn sem við meðtökum inn í líf okkar er sami kraftur og reysti Jesú upp frá dauðum. Vegna þess að kraftur Guðs er fyrir okkur vegna þess sem Jesús gerði á golgata. Hann tók okkar stað og í staðinn fáum við að taka hans stað og meðtaka þennan kraft inn í líf okkar. Þá erum við ekki að tala um neinn diet kraft, heldur allvöru kraft Guðs sem er handa hverjum þeim er trúir. Þú þarft ekki að hafa gengið í Biblíuskóla til að fá þennan kraft inn í líf þitt. Þú þarft ekki að vera eitthvað númer í kirkjunni þinni til að fá þennan kraft, þú þarft ekki að vera skráður sem fyrirbiðjandi eða einhver predikari. Þessi kraftur er handa öllum þeim sem trúa. Sem segir það að allir sem meðtaka Jesú Krist sem Drottinn sinn og frelara geta gert sömu verk og hann gerði þegar hann var á jörðinni. Þessi kraftur tilheyrir þér. Og þetta er allgjörlega óverðskuldað, því að krafturinn er gjöf til þín, við getum ekkert gert til að vinna okkur inn kraft Guðs. Vegna náðarinnar að þá hafa allir þeir sem trúa jafna möguleika að vinna mikil verk fyrir Guð vegna þess að sami kraftur og reysti Jesú upp frá dauðum er innra með okkur og það er okkar að læra nota hann undir leiðsögn Heilags Anda, sem kemur að því að við verðum að læra að hlusta eftir röddu Guðs og hlusta á það sem Heilagur Andi hefur að segja okkur.

1.Kor.1:18Því að orð krossins er heimska þeim er stefna í glötun en okkur sem hólpin verðum er það kraftur Guðs.

Það er kraftur í orði Krossins og þeim sem veita því viðtöku er það kraftur Guðs en þeim sem vilja fara sínar eigin leiðir og glatast er það heimska.

Fagnaðerindið er kröftugt í höndum Guðs og þess verks sem Jesús vann á golgata og hefur ekkert með okkar eigin verðleika að gera.

Róm.5:6Meðan við enn vorum vanmegna dó Kristur á settum tíma fyrir óguðlega.

Lögmálið gat ekki frelsað okkur og ekki okkar eigin verk...

Róm.8:3Það sem lögmálinu var ógerlegt, þar eð það var vanmegna gagnvart sjálfshyggju

 mannsins, það gerði Guð með því að senda sinn eigin son í líkingu syndugs manns gegn syndinni og dæma syndina í manninum. 4Þar með gat réttlætiskröfu lögmálsins orðið fullnægt hjá okkur sem andinn fær að leiða en ekki sjálfshyggjan.

Þannig að við sjáum að fagnaðarerindið sem eru góðu fréttirnar er kraftur Guðs til þeirra sem veita orðinu viðtöku. Guð setti kraft sinn í orð sitt og í orði Guðs er kraftur til frelsunar.

Páll talar um í upphafsversinu sem ég er að skoða að góðu fréttirnar um að Jesús frelsar eru fyrir alla þá sem trúa. Þá skiptir engu máli hvert þjóðerni þitt er, úr hvaða umhverfi þú kemur, hvaða fjölskildu þú tilheyrir, hvernig húðlitur þinn er, hver þyngd þín er, hver hæð þín er, hver menntun þín er. Jesús vill frelsa þig, og það skiptir ekki heldur máli hvað þú hefur gert af þér eða hvaða mæli þú notar á þig til að réttlæta það sem þú hefur gert. Vegna þess að frammi fyrir Guði eru allir menn sekir.

Róm.3:23Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð 24og Guð réttlætir þá, án þess nokkur verðskuldi það, af náð með endurlausn sinni í Kristi Jesú.

Af náð verðum við hólpin en ekki fyrir eigin verk, þú verður hólpin af því að segja já við Jesú því hann hefur áhuga á því og frelsar hvern þann er til hans leitar.

En það sem er merkilegt að skoða  er að Gyðingar áttu að heyra fagnarerindið fyrst og síðan hinir. En svo ég vitni aftur í...

Post.1:8En þér munuð öðlast kraft er heilagur andi kemur yfir yður og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar."

Fagnaðarerindið var predikað í þessari röð sem Jesús sagði við þá, þeir byrjuðu í Jerúsalem á meðal Gyðinga, fóru svo til Júdeu , Samaríu og svo út um allan heim.

En afhverju Gyðingum fyrst? Því að í gegnum Abraham kom ný þjóð sem var aðskilin fyrir Guð og kölluðust Gyðingar. Sonur Abrahams sem var Ískak eignaðist svo tvo syni Esaú og Jakob. Jakob náði blessun Föður síns með ráðum, en þeir voru tvíburar og Esaú fæddist á undan og átti því frumburðarréttinn. En Drottinn Guð breytti síðan nafni Jakobs í Ísrael og Ísrael minnir mig að þýði hermaður Guðs. En Ísrael átti 12 syni og út frá þeim koma ættkvíslir Ísraels. Þessar ættkvíslir heita í höfuðið á sonum Ísraels og mynda þær Ísraelsþjóð. Eins og menn vita að þá eru Ísraelar kallaðir Gyðingar. Gyðingar eru útvalin þjóð Guðs og út frá þeim fæddist Jesú. Þannig að Guð Faðir ákvað að fyrst skildi aðskilda þjóð hans fá að heyra það að Messías sem er Kristur væri upprisinn og hann væri sá sem þeir væntu. En það sem Gyðingar voru útvalin þjóð að þá var umskurnin tákn þess að þeir væru útvalin þjóð Guðs sem kom undan Abraham.

Matt.10:5Þessa tólf sendi Jesús út og mælti svo fyrir: „Leggið ekki leið yðar til heiðinna manna og farið ekki í samverska borg. 6Farið heldur til týndra sauða af Ísraelsætt.

Þessa skipun gaf Jesús svo til lærisveina sinna þegar hann senti þá til að predika fyrir öðrum. Fyrir Golgata að þá var Guð, Guð Gyðinga sem voru umskornir.

Róm.15:8Ég segi að Kristur sé orðinn þjónn hinna umskornu til að sýna orðheldni Guðs og staðfesta fyrirheitin sem gefin voru feðrunum

Þegar Pétur steig frama að þá predikaði hann fyrst í Jerúsalem allveg eins og Jesús hafði fyrirskipað...

Post.3:26Guð hefur reist upp þjón sinn og sent hann fyrst til ykkar til að blessa ykkur og snúa hverju ykkar frá vondri breytni sinni."

 

 

Eins má vitna í Jesaja sem spáir fyrir um þetta í:

Jes.2:3og margir lýðir koma og segja: „Komið, göngum upp á fjall Drottins,
til húss Jakobs Guðs svo að hann vísi oss vegu sína og vér getum gengið brautir hans." Því að fyrirmæli koma frá Síon, orð Drottins frá Jerúsalem.

Fagnaðarerndið var predikað Gyðingum fyrst og síðan í þeirri röð sem Jesús segir í Post.1:8... Jerúsalem, í allri Júdeu, Samaríu og svo til alls heimsins...

Núna vitum við það að það er kraftur Guðs sem frelsar okkur en ekki okkar eigin verk og þetta er skemmtilegt að sjá hversu nákvæm ritningin er í því sem hún segir.


Einstök vinátta

 

Einstök vinátta

Sigvarður Halldóruson

 

Þegar maður hugsar um að eiga eitthvað dýrmætt sem er ekki metið til fjár að þá er það góður og traustur vinur. Sannur vinur er sá sem stendur með manni sama hvað gengur á. Þegar á reynir sést hverjir eru vinir þínir og hverjir ekki. Það lítur oft þannig út að þegar við eigum peninga og nóg af öllu að þá vilji allir vera vinir okkar. En þegar auðurinn hverfur fækkar þeim líka. Svona hefur maður séð hjá mörgum og jafnvel upplifað það sjálfur.

En ég veit dæmi um vináttu sem var sönn og einstök. Þetta var vinátta Davíðs Konungs og Jónatans sem var sonur Sáls konungs. Þeir gerðu með sér sáttmála sem þýðir það að þeir tóku stað hvors annars. Það sem er svo merkilegt að skoða er hvernig þeir elskuðu hvern annan. Sumir hafa komið fram með þá villikenningu að þeir hafi verið samkynhneigðir. Það er allgjör vitleysa. Karlmenn geta allveg sagt við hvorn annan að þeir elski hvorn annan og þá er meiningin í vináttu. Margir eru hræddir við að segja þetta orð við, vini sína ég elska þig, því þeir eru svo hræddir um að vera kallaðir hommar. En það er allt í lagi að slaka á og segja þeim sem manni þykir vænt um að maður geri það.

Það  er eitt sem var mjög merkilegt í sambandi við Jónatan og Davíð. Jónatan var prins og sonur konungs. Eðlilegt hefði verið að hann myndi hlakka til að verða konungur eftir föður sinn. En málin horfðu öðruvísi þarna. Jónatan sagði við Davíð þegar þú verður konungur, þá mun ég standa þér við hlið. Þegar Sál faðir Jónatans ætlaði sér að drepa Davíð að þá aðvaraði Jónatan Davíð til að bjarga lífi hans.

En merkilegt er að Jónatan gat alldrei staðið við hlið Davíðs þegar Davíð var konungur vegna þess að hann var látinn. En Davíð sem hafði gert sáttmála við Jónatan fann eitt afkomanda hans sem hann gat sýnt miskunn. Mefibóset hét hann. Þegar Sál og Jónatan létust og Davíð varð konungur að þá var Mefibóset 5 ára gamall. Sú sem var að passa hann, lá svo mikið á að flýja því hún hélt að þau yrðu drepin, í þessum látum missti hún Mefibóset með þeim afleiðingum að hann lamaðist. Hún fór með hann á stað sem kallast Lódebar. Lódebar þýðir auðn eða staður þar sem ekkert er. Þarna var Mefibóset sem átti að erfa fyrirheit frænda síns Jónatans komin á stað þar sem ekkert var og enga blessun að hafa. Hann lifði í ótta að Davíð myndi vilja deyða líf hans.

En það var vegna Jónatans sem Davíð miskunaði Mefibóset. Mefibóset fékk svo að koma í konungshöllina. Við sjáum það sama með Jesú, hann tók okkar stað og vegna hans fáum við að sitja við borð Föðurins vegna Jesú. Þetta kalla ég sanna og einstaka vináttu að vera tilbúin að taka stað einhvers annars til að rétta hlut hans eða hennar...


Afdrif Júdasar...

Matt 27:5-5

Hann fleygði þá silfrinu inn í musterið og hélt brott. Síðan fór hann og hengdi sig.

Post 1:16-18

-16- Bræður, rætast hlaut ritning sú, er heilagur andi sagði fyrir munn Davíðs um Júdas, sem vísaði leið þeim, er tóku Jesú höndum. -17- Hann var í vorum hópi, og honum var falin sama þjónusta. -18- Hann keypti reit fyrir laun ódæðis síns, steyptist á höfuðið og brast sundur í miðju, svo að iðrin öll féllu út.

Það sem ég fór að hugsa þegar ég sá þennan mismun að þarna væru tvær mismunandi útgáfur á því hvernig fór fyrir Júdasi. En gamlar heimildarbækur eins og frá Ágústínus kirkjuföður segja að bæði Matteus og Lúkas hafi rétt fyrir sér með þessar útskýringar. Fyrir þá sem ekki vita að þá er Postulasagan framhald af Lúkasar Guðspjalli og er því Lúkas höfundur postulasögurnar.

En hvernig fær það þá staðist að báðir hafi rétt fyrir sér þegar þeim virðist ekki bera saman á því hvernig Júdas endaði líf sitt. Staðreyndin er sú að Júdas hengdi sig en reypið gaf sig og hann féll til jarðar með þeim afleiðingum að höfuð hans klofnaði og líkami hans þannig að líffærin löfðu út. Þetta er ekki falleg lýsing en svona var þetta.

Það er svoldið erfit að ýmynda sér að einhver sem gekk með Jesú hafi getað svikið hann svona eins og Júdas gerði, en hjarta hans hefur forherðst með þessum afleiðingum...

En hefði hann ekki getað fengið fyrirgefningu ? Jú það hefði hann getað, við sjáum bara Pétur hann afneitaði Jesú þrisvar sinnum.. En Pétur valdi það að iðrast með því að snúa sér til Jesú.. en Júdas valdi það að taka líf sitt fyirr að hafa svikið saklaust blóð..

þetta er svoldið í okkar höndum hvernig við bregðumst við hlutunum...


Hvernig endurreysti Drottinn samfélagið sem glataðist í Eden?

 

Hvernig endurreysti Drottinn samfélagið sem glataðist í Eden

Sigvarður Halldóruson

 

 

 

 

1Mós 1:26-27

-26- Guð sagði: Vér viljum gjöra manninn eftir vorri mynd, líkan oss, og hann skal drottna yfir fiskum sjávarins og yfir fuglum loftsins og yfir fénaðinum og yfir villidýrunum og yfir öllum skriðkvikindum, sem skríða á jörðinni. -27- Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd, hann skapaði þau karl og konu.

 

Guð skapaði okkur í sinni mynd en á hvaða hátt?

 

Jóh 4:24

Guð er andi, og þeir, sem tilbiðja hann, eiga að tilbiðja í anda og sannleika.

 

Biblían segir að Guð sé Andi og þeir sem tilbiðja hann eiga að tilbiðja hann í anda og sannleika. Þar af leiðandi er þetta sú mynd sem við erum lík Guði eða sköpuð í hans mynd og það er andinn sem við erum. Holdið er ekki skapað nákvæmlega eins og Guðs því að fólk er misjafnt í útliti, menn eru, hvítir, svartir, gulir, mjóir, feitir, litlir, stórir, karl og kvenkyn, allir hafa mismunandi hæfileika , fólk er misjafnt eins og það er margt. Þess vegna er það andinn í okkur sem er skapaður í Guðsmynd.

 

Við erum andi, búum í líkama og erum með sál. Við erum sköpuð til þess að vera með Guði. En þegar við erum ekki tengd við hann að þá er andinn í okkur myrkraður eða sofandi. Við erum þannig sé andlega dauð ef við erum fjarri Guði. En Þegar Jesús kemur inn í líf okkar að þá breytist hugsunarháttur okkar. Við förum að hugsa öðruvísi og förum að breytast í þá mynd se við vorum sköpuð til að vera í, Guðsmynd.. verðum líkari Jesú og það á að vera okkar markmið.

 

Tilgangur sköpunar okkar var fimfaldur. Fyrsti tilgangurinn er sá að Guð skapaði okkur í sinni mynd, fyrir sig og sér til ánægju. Það er að segja að þegar Guð skapaði okkur að þá var hann ánægður. Upphaflega átti þetta að vera svona . Við sjáum bara Adam og Evu. Spá í þeim forréttindum sem þau lifðu í Paradís. Þau þurftu ekkert að erfiða og voru í nærveru Guðs. Það talar um það að Guð gekk um í kvöldsvalanum. Síðan þekkjum við þann part þegar þau óhlýðnast Guði. Eva klikkar fyrst og svo Adam með henni. En það sem ég hef oft velt fyrir mér afhverju var Adam ábyrgur fyrir því að þau féllu? Eva klikkaði fyrst. Til þess að skilja þetta að þá verður maður að skilja að Guð er Guð sáttmálans. Fyrsta stofnunin sem Drottinn setti á fót á jörðinni var hjónabandið sem er bundið sáttmála.

 

1Mós 2:24

Þess vegna yfirgefur maður föður sinn og móður sína og býr við eiginkonu sína, svo að þau verði eitt hold.

Mal 2:14-16

-14- Þér segið: Hvers vegna? Af því að Drottinn var vottur að sáttmálsgjörðinni milli þín og konu æsku þinnar, er þú hefir nú brugðið trúnaði við, enda þótt hún væri förunautur þinn og eiginkona þín eftir gjörðu sáttmáli. -15- Hefir ekki einn og hinn sami gefið oss lífið og viðhaldið því? Og hvað heimtar sá hinn eini? Börn sem heyra Guði til. Gætið yðar því í huga yðar, og bregð eigi trúnaði við eiginkonu æsku þinnar. -16- Því að ég hata hjónaskilnað segir Drottinn, Ísraels Guð, og þann sem hylur klæði sín glæpum segir Drottinn allsherjar. Gætið yðar því í huga yðar og bregðið aldrei trúnaði.

Matt 19:6

Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.

 

Við sjáum að Drottinn segir að það sem hann hefur tengt saman má ekki sundur skilja, og hann segist líka hata hjónaskilnað. Ef Drottinn hefði aðskilið þau að þá væri hann ekki samkvæmur sjálfum sér. Í hjónabandi er maðurinn höfuð fjölskildurnar og þess vegna var Adam ábyrgur og út frá þessum sáttmála féllu þau bæði. Þó svo að þau hafi rofið sáttmála sinn við Drottinn að þá rífur Drottinn ekki sáttmála sinn við okkur þótt við klikkum. Drottinn segir: Ég skal reynast sannorður þótt sérhver maður sé lygari. Guð bregst alldrei ...

 

Þarna er komin aðskilnaður milli Guðs og manna því að synd er komin í heiminn og Guð getur ekki verið þar sem synd er. Guð varð ekki reiður og fékk ekki þá hugmynd að tortíma Adam og Evu fyrir að hafa óhlýðnast. Hann sagði strax við þau ég mun senda son minn til að bjarga ykkur og endurreysa samfélagið sem rofnaði milli okkar núna.

1Mós 3:15

Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis. Það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess.

 

Þessi orð segir Drottinn við satan sem er andstæðingur Drottins. Drottinn segir við hann, ég mun senda son minn til að sigra þig og ná valdinu aftur á jörðinni. En til að skilja þetta betur að þá gaf Drottinn manninum yfirráð yfir jörðinni. En við syndafallið missti maðurinn það í hendurnar á satan. En Drottinn hafði áætlun að ná valdinu aftur á jörðinni en sú áætlun var opinberuð fram að þeim tíma þar til Kristur kom og Drottinn lék á satan. Ef Drottinn og Satan hefðu verið í skák, að þá hefði verk Jesú á Krossinum á golgata sagt skák og mát.

 

En áður Jesús kom þurfti samt margt að koma fram. Dottinn þurfti að sýna okkur að án hans að þá værum við ekki neitt. Í fysta lagi að þá er Drottinn að undirbúa komu Krists allan tíman þar til hann kemur. En sú leið sem Drottinn valdi til að bjarga okkur kallast blóðsáttmáli.  En það er hægt að skrifa margar bækur um þann sáttmála. En ég set bara fram nokkra punkta um það núna. Blóðsáttmáli er fólgin í því að menn gera með sér samkomulag sem er innsiglað með blóði. Sá sáttmáli er órjúfanlegur. Ef tveir menn gera með sér sáttmála að þá eru þeir skuldbundir hvorum öðrum. Ef annar lendir í vandræðum, segjum tildæmis að annar myndi lenda upp á kant við ákveðna aðila sem ætluðu sér að ganga frá honum. Þá væri sáttmálinn þannig að þeir þyrftu þá að sigra hinn sem gerði blóðsáttmálan líka. Þannig að í stað þess að standa einir að þá standa þeir saman. Ef annar lendir í fjárhagserfiðleikum og hinn á nóg af peningum að þá bjargar hann honum. Þannig sáttmála erum við í núna með Kristi, allt sem við eigum, það á Guð, allt sem hann á það eigum við. Þegar einhver ætlar að gera okkur mein að þá þarf hann fyrst að sigra Guð, en það getur enginn sigrað Guð og það veitir okkur öryggi að vera í sáttmála við skapara himins og jarðar. En þegar einhver ræðst á trúnna okkar eða orð Guðs að þá ber okkur skilda til að verja trúnna og Orð Guðs. Þessi sáttmáli er gerður þannig að báðir aðilar verða að halda við sitt loforð.

 

Drottinn gerði þennan sáttmála við Abraham sem er forfaðir okkar. Út frá því fara hlutirnir að gerast.

 

Drottinn sýnir okkur margt í Orði sínu hvernig hann undirbýr komu sonarins í heiminn og hvernig Faðir hann er og hvernig hann annast börnin sín. Við þurfum bara að líta til eyðimerkurfarar Ísraelsmanna sem stóð yfir í 40 ár. Þeim skorti alldrei neitt, hann sá þeim fyrir  fæði og klæði og skjóli og verndaði þá. Þetta hefur ekkert breyst í dag, við sjáum Föðurhjarta Guðs í gegnum þennan tíma og hvernig hann er í dag því hann hefur ekkert breyst og vill annast okkur líkt og hann gerði í eyðimörkinni.

 

Matt 6:25-27

-25- Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? -26- Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? -27- Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?

Matt 6:33

En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.

 

Biblían segir að við eigum að leita fyrst ríkis Guðs og réttlætis. Og þá mun allt þetta veitast okkur að auki. En mig langar að leiðrétta eina allgenga villu sem menn hafa lesið út úr þessu versi. Menn lesa þetta þannig að ef við leitum Guðs að þá mun allt annað veitast okkur að auki. En það er ekki það sem stendur. Það sem stendur er við leitumst eftir því að lifa réttlátu lífi og treystum á Guð að þá mun allt þetta veitast okkur að auki. En hvað á hann við allt þetta? Jú það sem stendur í samhengi í þessum kafla, fæði, klæði og húsnæði. Þegar við erum með Guði að þá annast hann okkur þar sem við erum börnin hans.

 

Annað sem við sjáum þegar Guð Faðir undirbýr komu sonarins í heiminn. Það er lögmálið og boðorðin 10. Lögmálið var sett fram til að sýna okkur fram á það að við værum ófullkomin og að við þyrftum á frelsara að halda. Það var til að sýna okkur að án Guðs að þá erum við ekki neitt. Það var líka til að sýna okkur fram á það að við værum sek frammi fyrir Guði vegna synda okkar og að við gætum ekki unnið okkur inn vist í himnaríki með okkar eigin verkum. Menn reyndu í langan tíma að fara eftir þessu eins vel og þeir gátu en þeir gátu það ekki. Jesús sagði ef að maður myndi brjóta eitt boðorð að þá væri maður sekur við allt lögmálið.

 

Jesús er sá eini sem hefur fullkomnlega farið eftir lögmálinu. Hann var fullkomin fyrir okkur. Jesús er ekki bara okkar réttlæti , heldur hefur hann endurreyst samfélagið við Föðurinn sem glataðist í Eden. Aðeins í gegnum Jesú Krist að þá getum við komið fram fyrir Föðurinn. Guð var ekki lengur fjarlægur eins og hann hafði verið frá syndafallinu og fram að þeim tíma þar til Kristur fullkomnaði fórnina á golgata. Guð er okkur nálægur og þá má líkja þessu við adsl nettenginu. Við erum sítengd við Drottinn. Allt sem við segjum fer beint upp til hans þótt við séum ekki á bæn og þess vegna þar maður að gæta sín á því hvernig maður talar. Því það þýðir ekki að vera fölsk þegar við höldum að enginn heyri til og vera svo svaka heilagar helgislepjur þegar við komum fram fyrir Föðurinn. Við eigum að vera alltaf eins og tala bara við hann eins og við tölvum við hvort annað, í virðingu og trausti.

 

Við erum sköpuð til að vera í nærveru Guðs og þegar við erum ekki með Guði að þá hugsum við öðruvísi en við vorum vön að gera þegar við lifðum í heiminum. Það er vegna þess að núna lifum við undir áhrifum Heilags Anda og Biblíunar sem er innblásið orð hans.

 

Að reyna lifa lífinu án Guðs má líkja við bát sem siglir út á haf án þess að hafa áttavita og hann veit ekkert hvert hann stefnir eða hver tilgangur hans er.

 

Núna er tækifæri fyrir þá sem hafa ekki gert upp hug sinn að ganga inn í tilgang sköpunar sinnar og til samfélags við Föðurinn í gegnum Jesú Krist. Einu skilyrðin til að eignast þetta samfélag er að fylgja því sem stendur í  Róm 10:9-10

-9- Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða. -10- Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.

 

Jesús er eina leiðin inn í himininn...

 

Jóh 14:6

Jesús segir við hann: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.


Fyrsta kraftaverk Jesú... afhverju þetta kraftaverk en ekki eitthvað annað?

Fyrsta tákn Jesú...

Sigvarður Halldóruson

 

Það sem mig langar svo að skoða í frásögunni um þegar Jesús gerði sitt fyrsta kraftaverk hvort það hafi verið einhver sérstök ástæða fyrir því afhverju, þessi dagur var valinn og afhverju fyrsta kraftaverkið var að breyta vatni í vín. Hefur þetta einhverja dýpri merkingu en að þetta var bara fyrsta kraftaverkið sem Jesús gerði?

 

1Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. 2Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. 3En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: „Þeir hafa ekki vín."
4Jesús svarar: „Hvað viltu mér, kona? Minn tími er ekki enn kominn."
5Móðir hans sagði þá við þjónana: „Allt það sem hann segir ykkur, það skuluð þið gera."
6Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá.
[1]

  7Jesús segir við þá: „Fyllið kerin vatni." Þeir fylltu þau á barma. 8Síðan segir hann: „Ausið nú af og færið veislustjóra." Þeir gerðu svo. 9Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki hvaðan það var en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann 10og sagði: „Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara er menn gerast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú."
11Þetta fyrsta tákn sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína og lærisveinar hans trúðu á hann.
12Eftir þetta fór hann ofan til Kapernaúm ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum. Þar voru þau nokkra daga.

 

Í fyrsta lagi að þá er eitt sem ég tek eftir og það er að Jósef Faðir Jesú var ekki með og það er ekkert minnst á hann eftir að Jesú hefur þjónustu sína. Það síðasta sem við heyrum minnst á Jósef er þegar Jesús er tólf ára. Þá koma þessi ár frá 12-30 sem lítið er vitað um ævi Jesú nema að hann var foreldrum sínum hlýðin og gerði það sem fyrir hann var lagt og að hann var smiður. Þannig að líklegast hefur hann þá unnið sem smiður og var þekktur sem sonur smiðsins. Og á þessum tíma hefur Jósef líklegast dáið. Því að aðeins er minnst á bræður hans og systur en þær eru ekki nafngreindar, þannig að ég hef ekki enþá fundið heimildir fyrir því hvað þær voru margar eða hvað þær hétu og verður það eflaust ein af mínum spurningum þegar ég fer upp til himins í dýrðina til míns Himneska Föður og konungsríki Drottins Jesú Krists.

 

En þessi frásaga byrjar á þriðja degi. Merkir það eitthvað að þetta var á þriðja degi? Sumir vilja meina að þessi dagur hafi sérstaka meiningu. Að þetta hafi verið á þriðja degi giftingarhatíðarinnar . Jesús reis upp á þriðja degi, þetta gæti þýtt að þessi dagur var skuggamyndin upp á upprisu Jesú Krists. Giftingar stóðu yfirleitt yfir í viku eða var svona giftingarhátið og þetta var á þriðja degi hennar. Spá í því að vera gifta sig og Drottinn sjálfur er þarna mitt á meðal. Hefði maður ekki verið ánægður að gifta sig og fá blessun skaparans sem stóð þarna mitt á meðal? Ég hugsa það. Það hafa verið mikil forréttindi að hafa verið uppi á þessum tíma þegar Jesús gekk um á jörðinni og fá að ganga með honum og sjá allt sem hann gerði.

 

Það sem er merkilegt líka að skoða er þegar vínið er búið að þá segir móðir Jesú við hann vínið er búið. Hefði hún ekki undir venjulegum kringumstæðum tala við gestgjafann? Eflaust. En það sem ég velti fyrir mér, vissi hún að tími Jesú væri komin þarna á þessum punkti? Sumir hafa túlkað þetta á þann hátt að hún hafi ýtt honum af stað á þessum tíma.

 

En það sem er svo merkilegt við andsvar Jesú. Hann segir ekki hvað varðar þetta þig og mig mamma. Hann segir hvað varðar þetta mig og þig kona. Þarna er eitthvað sem er að breytast. Þetta gæti virkað dónalegt svar til móður hans en þetta var það ekki. Því að það sem hann á við með þessum orðum er að mamma ég elska þig þú ert jarðnesk móðir mín. En núna átt þú ekkert meira tilkall til mín heldur en hinir sem í kringum mig eru. Og þarna er Jesús að opinberast sem sonur Guðs. Það er líka eins og þegar Jesús segir við mömmu sína minn tími er ekki kominn að hann sé að segja ekki ýta mér af stað.

 

Þrátt fyrir þetta svar Jesú segir María móðir hans ákveðin við þjónana gerið það sem hann segir ykkur að gera. Gætu þessi viðbrögð hennar við orðum hans verið að hún sé að segja óbeint, jú sonur minn þinn tími er kominn, það er komin tími til að þú opinberist sem sonur Guðs. Það er komin tími á að þú opinberir hver þú ert og afhverju þú komst í þennan heim. Sumir gætu þa hugsað en já Jesús var fullkominn hann syndgaði alldrei. Rétt er það hann syndgaði alldrei annars hefði fórn hans á krossinum verið ógild. En gæti hann ekki bara hafa verið að reyna móður sína, eða vildi hann að það yrði staðfest að þarna væri tíminn kominn? Það er hægt að velta sér svoldið upp úr þessu enn eitt er þó víst að þarna framkvæmdi Jesú sitt fyrsta kraftaverk. ...

 

Þarna voru sex vatnsker. Talan 6 er tala mannsins og tala ófullkomnleikans. Hún merkir það að Guð skapaði manninn ófullkominn og takmarkaðan og án hans að þá gætum við alldrei fullnægt þörfum okkar. Vatnskerin voru 6 og var hvert þeirra 2-3 mæla.

 

Einn mælir er 39.39 lítar þannig að hvert vatnsker hefur verið um 100 lítrar.  Það sem stóð á þessum kerum er mjög merkilegt að skoða. Qui multa utitur aqua in lavando, multas consequetur in hoc mundo divitias = Sá sem mun þrífa sig mikið með vatni mun öðlast auðlægð eða ríkidæmi í þessum heimi.   

 

Það hafði bara komið vatn í þessi ker og þau voru ætluð til hreinsunar eins og það sem stóð á þeim gaf til kynna. Þarna fara þeir of ná í vatn og fylla á þessi ker og þetta hefur verið um 600 lítar af vatni sem þeir hafa ausið í. Það að vatnskerin voru tóm merkir að maður án Guðs er tómur innan frá. Við leitum oft að lífsfyllingu í hlutum og því sem tilheyrir heiminum en verðum samt alldrei andlega fullnægð, sama hversu mikið við eignumst af hlutum og að peningum. Það er ekki fyrr en við leyfum Guði að koma inn í líf okkar og fylla á kerin sem við verðum andlega fullnægð.

 

Vatnið í Biblíunni er líka táknmynd upp á orð Guðs. Þegar við lesum það að þá hreinsar það okkur að innan og hefur áhirf á huga okkar og hjarta.

Efes 5:26til þess að helga hana með orðinu og hreinsa hana í vatnslauginni.

 Jóh.15.3Þér eruð þegar hrein vegna orðsins sem ég hef talað til yðar

Allir þjónar Guðsríkisins þurftu á þessum tíma að fylla sérstaka vatnspotta með vatni til að þrífa hendur sínar, sem má heimfæra yfir í nútímann þar sem predikarar þurfa að færa fólkinu Orð Guðs. Við sem erindrekar Krists erum ekki frelsarar, en við getum talað út orð Guðs sem hreinsar fólk að innan og leyft því að vinna í fólkinu. Kristur er orðið (logos)  og það er hann sem vinnur kraftaverkið þegar við tölum út hans orð.

 

En aftur að vatnskerunum þarna eru 600 lítar af vatni í hreinsunarkerum og þessi vatnsker höfðu bara verið notuð til þess að hreinsa sig. En þarna er Jesús á meðal þeirra og það segir ekkert til um hvort hann hafi sagt eitthvað til þess að vatnið breyttist. Nærvera hans var svo öflug að það hefur nægt honum að líta bara með augnráðinu einu og vatnið breyttist í vín. Það stendur ekki heldur að Jesús hafi sagt komið með vínið og leyfið mér að smakka það.  Hann sagði þjónunum bara að taka af vatninu og færa fólkinu.

 

Vín er táknmynd upp á gleði í þessu tilviki og fyllingu Heilags Anda. Sumir hafa velt því fyrir sér hvort vínið hafið verið mjög áfengt á þessum tíma. En sögulegar heimildir tala um að vín hafi alldrei verið mjög alkóhólríkt á þessum tíma. En þó líklegast um 1-2 % að styrkleika. En það var til þess að vínið geymdist betur þar sem menn voru ekki með neinar geymslur til að geyma þetta á þessum tíma. Heimildir segja líka að á þessum tíma hafi það oftast verið grape djús sem var drukkinn á þessum tíma og það var kallað vín. En það er allveg vitað að menn urðu drukknir á þessum tíma því að við getum allveg farið til baka í Nóa flóðið þar sem Nói var sá fyrsti sem bruggaði vín og drakk sig drukkinn. En á þessum tíma og í svona brúðkaupshátíðum að þá var vín alldrei sterkt.

 

Þegar Heilagur Andi kemur inn í líf okkar og við fyllumst honum að þá kemur mikil gleði inn í líf okkar. Það er að segja að við öðlumst mikla gleði þegar við fyllumst af Heilögum Anda. Efes.5:18Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, það leiðir aðeins til spillingar. Fyllist heldur andanum

 

Þegar fólk hefur fengið að heyra Orð Guðs sem hreinsar það að innan að þá er það tilbúið að taka við kraftaverkinu sem færir þeim gleði.

 

Þá er vatnið hreinsun og vínið fylling Heilags Anda sem færir okkur gleði.

 

Síðan er eitt sem þarf að skoða og það er 10 versið þar sem veislustjórinn kallar á brúðgumann og segir að vanalega er góða vína borið fram fyrst en er menn gerast ölvaðir að þá fá þeir það lakara en þú hefur geymt góða vínið þar til nú.

 

Sú opinberun sem ég hef á þetta er að gamla vínið er Gamli sáttmálinn og nýja vínið er Nýji sáttmálinn. Gamli sáttmálinn var góður og margir frábærir hlutir gerðust. Spámennirnir komu og fóru og fengu að upplifa frábæra hluti. Við þurfum bara að lesa smá í Gamla Testamenntinu (testamennti = sáttmáli) að þá sjáum við margt svo stórkostlegt gerast. Rauðahafið opnast fyrir Ísraelsmönnum, kjúklingum rignir í eyðimörkina (lynghæns) vatn sprettur upp af kletti, exi er látið fljóta upp, smá dropar af olíu breytast i marga lítra af olíu oflr sem gerist. En samt segir að Nýji sáttmálinn er betri.

 

Ég er allveg sammála því að sá sáttmáli sem við eigum í Kristi er miklu betri en sá sem Gyðingarnir fengu á sínum tíma. Nýji sáttmálinn merkir náð.

Náðin kom fyrir Jesú Krist.

 

Með því að kafa aðeins dýpra í orðið og skoða sögulegar heimildir á bakvið það sem gerðist þegar Jesús framkvæmdi sitt fyrsta kraftaverk að þá sjáum við að þetta er ekki bara saga. Heldur er hvert smáatriði úthugsað og nákvæmt. Guð er nákvæmur Guð og hjá honum skipta smáatriðin máli. Og því meira sem maður skoðar Orð Guðs því meira sér maður hversu stórkostlegur Guð hann er og að Orð hans er ókseikult þó svo að menni reyni að sannfæra sig og aðra um eitthvað annað. En Orð Guðs staðfestir sig alltaf sjálft og ver sig sjálft. Ég hef ott heyrt að menni hafi réttlætt það fyrir sér að með því að breyta vatni í vín að þá hafi Jesús verið að segja að það sé allt í lagi að vera drekka sjálfur og vera á fylleríum. Maður verður að gæta sín á því að taka alldrei Orð Guðs úr samhengi og láta það segja eitthvað sem það er ekki að segja. Það þarf alltaf að skoða hlutina í samhengi og spyrja sjálfan sig þeirra spuringa, afhverju var þetta svona og hvaða tilgangur var með því? Maður þarf líka alltaf að reyna komast að því hvað það var sem rithöfundurinn sjálfur meinti með því sem hann skrifaði.


Til umhugsunar... hlýleg orð geta breytt öllu

Dag einn bað kennari nemendur sína um að skrifa nöfn bekkjafélaga sinna á blað.

Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu, og hafa auða línu á milli.

Síðan bað hún nemendur sína, að hugsa það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið.

Þegar nemendurnir fóru úr tíma, skiluðu þau blöðunum til kennarans, sem að fór með þetta heim, og vann lista um hvern og einn nemanda fyrir sig, upp úr blöðunum sem að bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.

Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir.

Þegar þeir lásu þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.

Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli.

Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana, en þetta hafði tilætlaðan árangur.

Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.

Lífið hélt áfram.

Mörgum árum sienna, lést einn nemendanna sem hét Magnús og

Kennarinn ákvað að vera viðstaddur jarðarförina.

Einn vinur hins látna gekk til hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans,

Hann sagði að Magnús hefði talað mikið um hana.  

Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið.

Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var

það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum.

'Þakka þér fyrir að gera þetta,

Því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli' sagði móðir Magnúsar.

Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði

Fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli.

Þetta var eitt af því sem þeim þótti vænst um.

Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði

hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.

Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið

endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.

Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér

mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en

það

verður of seint.


predikunin úr Vonarhöfn

 

Girndin

Sigvarður Halldóruson       föst. 14 mars 2008 Vonarhöfn

 

Við heyrum oft predikað um að þegar við höfum gefið Jesú Kristi líf okkar að syndavandamálið er ekki lengur til staðar. Því við höfum verið leyst frá syndinni.

Gal 2:20 ...Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Lífinu, sem ég lifi nú hér á jörð, lifi ég í trúnni á Guðs son, sem elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.

Jesús kristur lifir í okkur og við ekki sjálf framar. En stríðið sem við eigum í dag, er ekki við syndina heldur girndina sem í okkur er. Við könnumst eflaust flest öll við það hvað það er að girnast eitthvað.

2Mós 20:17...Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það, sem náungi þinn á.

Eitt af boðorðunum 10 segja að við eigum ekki að girnast. Við eigum oft í baráttu við girndina, hvort sem það er að girnast mat, eða girnast aðila af gagnstæða kyninu. En hvað er þá til ráða til að losna undan því að vera alltaf að girnast? Hver er lausnin?

Róm 8:5-14

-5- Því að þeir sem láta stjórnast af holdinu, hyggja á það sem holdsins er, en þeir, sem láta stjórnast af andanum, hyggja á það sem andans er. -6- Hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður. -7- Hyggja holdsins er fjandskapur gegn Guði, með því að hún lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki. -8- Þeir, sem eru holdsins menn, geta ekki þóknast Guði. -9- En þér eruð ekki holdsins menn, heldur andans menn, þar sem andi Guðs býr í yður. En hafi einhver ekki anda Krists, þá er sá ekki hans. -10- Ef Kristur er í yður, þá er líkaminn að sönnu dauður vegna syndarinnar, en andinn veitir líf vegna réttlætisins. -11- Ef andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með anda sínum, sem í yður býr. -12- Þannig erum vér, bræður, í skuld, ekki við holdið að lifa að hætti holdsins. -13- Því að ef þér lifið að hætti holdsins, munuð þér deyja, en ef þér deyðið með andanum gjörðir líkamans, munuð þér lifa. -14- Því að allir þeir, sem leiðast af anda Guðs, þeir eru Guðs börn.

Eina lausin er að fylla sig af Guði, þá verður hreinlega ekki pláss fyrir girnd eða þrá í synd í lífi okkar.

Róm 1:24-26

-24- Þess vegna hefur Guð ofurselt þá fýsnum hjartna þeirra til saurlifnaðar, til þess að þeir svívirtu líkami sína hver með öðrum. -25- Þeir hafa skipt á sannleika Guðs og lyginni og göfgað og dýrkað hið skapaða í stað skaparans, hans sem er blessaður að eilífu. Amen. -26- Þess vegna hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg,

Það sem Páll á við í þessum versum er að þegar fólk hefur afneitað Guði og þeirri lausn sem hann bíður upp á, að þá taka við aðrar þrár og girndir í lífi okkar, og þar sem menn vilja ekkert með Guð hafa að þá eru það girndir holdsins sem menn sækjast eftir að lifa eftir. Og þegar menn afneita lausninni frá syndinni sem er í Jesú Kristi að þá er enga aðra lausn að fá og menn eru fjötraðir í synd.

Til þess að útskýra þetta aðeins nánar að þá erum við Andi, búum í líkama og erum með sál. Áður en við gáfum Jesú Kristi líf okkar að þá var andin í okkur myrkraður eða sofandi. En þegar Jesús kom inn í líf okkar að þá lifnaði andinn í okkur við. Þá fyrst fór að koma stríð á milli holdsins og andans. Vegna þess að þegar við vorum í heiminum að þá létum við stjórnast af holdsins girndum því við vissum ekki betur. En þar sem við höfum verið lífguð í Jesú Kristi að þá hefur hugsunarháttur okkar breyst.

Líf okkar breytist mishratt en lausnin er alltaf sú að fylla sig af Guði og gefa honum líf sitt sem sáttarfórn á hverjum degi.

Róm 12:1-2

-1- Því brýni ég yður, bræður, að þér, vegna miskunnar Guðs, bjóðið fram sjálfa yður að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn og rétt guðsdýrkun af yðar hendi. -2- Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.

Á hverjum degi fáum við nýtt upphaf og nýja byrjun og á hverjum degi höfum við val að hafa daginn í Guðs höndum eða reyna feta okkar eigin leiðir sem virka ekki vel. Biblían segir skýrt að við eigum ekki að vera eins og þeir sem hafa ekki veitt Jesú Kristi viðtöku inn í líf sitt. Við eigum að vera öðruvísi og það er áskorun Guðs til okkar allra að gefast honum allgerlega.

Það að halda í syndir í lífi sínu veit ekki á gott. Ég hef oft reynt að halda sumum hlutum út af fyrir mig í lífi mínu og ekki leyft Guði að fá alla stjórn. En það sem gerðist er að ég beið alltaf ósigur fyrir girndinni og komst voða lítið frá þessum hlutum sem ég vildi stjórna sjálfur. Ég losnaði ekkert frá þeim fyrr en ég gaf Guði allt.

Málið er nefnilega þannig að við höldum svo oft í eitthvað en svo þegar við sleppum tökunum á þessum hlutum að þá skiljum við ekkert í því afhverju við gerðum þetta ekki fyrr.

En góðu fréttirnar eru þær að núna er tækifæri til að gefa Guði allt. Við lifum á þannig vakningartíma að Guð þarfnast einstaklinga sem eru tilbúnir að fara alla leið fyrir hann. Ég veit það að Drottinn ætlar að margfalda mannfjöldan sem er hér. En þráir samt að fá meira af okkur öllum. Því meira sem er af honum því meira gerist.

Fil 2:13...Því að það er Guð, sem verkar í yður bæði að vilja og framkvæma sér til velþóknunar.

Eina þráin eða girndin í okkar lífi á að vera sú að fá meira af Guði. Þá verður ekkert pláss fyrir aðrar þrár í lífum okkar. Okkar himneski Faðir sem við megum allveg kalla pabba þráir að gefa okkur meira og meira..

Drottinn hefur opinberað það fyrir mér að ég sæki oft í girndir til að reyna upplifa viðurkenningu eða ást. En það eina sem við þurfum er ást Föðurins til okkar. Það er það eina sem virkar, að fylla sig af ást Guðs. Vegna þess að þegar við fyllum okkur af ást Guðs að þá hverfur þessi þörf fyrir að vera sækjast eftir viðurkenningu frá mönnum eða þessi leit eftir ást.

Öll sú ást og viðurkenning sem við þurfum, fáum við frá okkar himneska Föður. Jóhannes postuli talar um að fullkomin elska rekur burt allan ótta úr lífi okkar, elska Guðs rekur ekki bara burt allan ótta, heldur líka þrána í syndina. Þess vegna ef við viljum ganga stöðug að þá þurfum við að biðja pabba okkar á himnum að koma og fylla okkar af sinni elsku. Og það er það sem hann ætlar að gera núna og það er að fylla á ykkur sína ást og gefa ykkur meiri opinberun á Föðurást sína til okkar...


Vonarhöfn

Það vill svo til að annað kvöld er ég að fara predika í Vonarhöfn og vil ég hvetja sem flesta til að koma þangað og hlusta. Þetta er hliðina á Bónusvideo í Hafnarfirði og byrjar klukkan 20:00...

 


Skilgreining Biblíuarnar á kærleika

„Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.  Kærleikurinn öfundar ekki.  Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.  Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin.  Hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.  Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.  Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.“

1.Kor.13:4-7.

1)   ER LANGLYNDUR - (þolinmóður) heldur út í erfiðleikum.

2)   ER EKKI UPPSTÖKKUR - hann lætur Guði eftir að fást við óréttlætið.

3)   ER VELVILJAÐUR - tillitssamur, reynir að hjálpa, er uppbyggjandi, blessar þegar aðrir bölva, sýnir blíðu.

4)   ÖFUNDAR EKKI - er þakklátur, hleypir öðrum fram fyrir sig.  Gleðst þegar öðrum gengur vel.

5) ER EKKI RAUPSAMUR - (ekki að monta sig) er ekki önnum kafinn við að sýna sig, að ganga í augun á öðrum, þarf ekki alltaf að vera miðpunktur athygli annarra.

 



6)   HREYKIR SÉR EKKI UPP - er auðmjúkur, ekki stoltur, þarf ekki að láta bera á sér.

7)   HEGÐAR SÉR EKKI ÓSÆMILEGA - er kurteis og vingjarnlegur.

8) LEITAR EKKI SÍNS EIGIN - getur lagt eigin áhugamál til hliðar.

9) HANN REIÐIST EKKI - hefur þægilegt skapferli.

10)   ER EKKI LANGRÆKINN - er ekki hefnigjarn, breiðir frekar yfir.

11)   GLEÐST EKKI YFIR ÓRÉTTVÍSI EN SAMGLEÐST SANNLEIKANUM - breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.

 



Þetta örvar vöxt kærleikans:

Samskipti

Að gefa sig allan

Samúð

Fyrirgefning

Heiðarleiki

Viðurkenning

Áreiðanleiki

Kímnigáfa

Rómantík og kynlíf

Þolinmæði

Frelsi

 



Þetta gerir út af við kærleikann:

Samskiptaleysi

Eigingirni

Engin fyrirgefning

Afbrýðisemi

Vantraust

Fullkomnunarárátta

Ósveigjanleiki, að vilja ekki breyta neinu

Skilningsleysi

Virðingarleysi

Skeytingarleysi

 



Að elska er að. . . .

- gefa.

- hlæja.

- halda barninu í þér lifandi og leyfa því að leika sér.

- hlusta - þú lærir ekkert af því að hlusta á sjálfan þig tala.

- virða samskipti hins við aðra en þig.

- virða sjálfan þig.  Þeir einu sem kunna að meta gólfmottu eru þeir sem eru í skítugum skóm.  Fyrir Guði eru allir jafn dýrmætir.

- girða ekki hvort annað af.  Það getur ekkert vaxið í skugganum.

- taka sjálfan sig ekki svo alvarlega, en hinn aðilann alltaf.

- gera annarra vandamál ekki að þínum eigin.  Það gerir lausn þeirra aðeins tvöfalt erfiðari.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband