Boðorðin 10 enþá í gildi?

 

                Kærleikurinn fylling lögmálsins.

                        Lögmálið (Boðorðin)

                           Sigvarður Halldóruson undir leiðsögn Heilags Anda.

 

Lögmál=Að vera virkur undir stjórn.

(1.) Lögmál náttúrunar er vilji Guðs til mannsins í framferði eða hegðun, stofnsett eða reist á boðskap mismunandi hluta, og endurspegluð með ljósi náttúrunar. (Róm.1:20...Því að hið ósýnilega eðli hans, bæði hans eilífi kraftur og guðdómleiki, er sýnilegt frá sköpun heimsins, með því að það verður skilið af verkum hans. Mennirnir eru því án afsökunar.; Róm.2:14...Þegar heiðingjar, sem hafa ekki lögmál, gjöra að eðlisboði það sem lögmálið býður, þá eru þeir, þótt þeir hafi ekki neitt lögmál, sjálfum sér lögmál., Róm.2:15... Þeir sýna, að krafa lögmálsins er rituð í hjörtum þeirra, með því að samviska þeirra ber þessu vitni og hugrenningar þeirra, sem ýmist ásaka þá eða afsaka.). Þetta lögmál hefur alltaf verið bundið manninum . Þetta er  yfirleitt sjálfgefið með orðum samviskunar, eða getu mannsins vegna áhrifa af boðskap um samband milli hluta.

(2.) Viðhafnarsiður Lögmálsins fyrirskipar undir Gamla Sáttmálanum helgiathafnir og athafnir lofgjörðar. Þetta Lögmál var aðeins skylda fram að komu Krists, hver þessara helgiathafna voru táknrænar, honum sem hafði lokið sínu verki. (Heb.7:9... Og svo má að orði kveða, að enda Leví, hann sem tíund tekur, hafi greitt tíund, þar sem Abraham gjörði það, Heb.7:11... Hefði nú fullkomnun fengist með levíska prestdóminum, en hann var grundvöllur lögmálsins, sem lýðurinn fékk, hver var þá framar þörf þess að segja að koma skyldi annars konar prestur að hætti Melkísedeks, en ekki að hætti Arons? Heb.10:1... Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða, sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Ár eftir ár eru bornar fram sömu fórnir, sem geta aldrei gjört þá fullkomna til frambúðar, sem ganga fram fyrir Guð. Efes.2:16... Í einum líkama sætti hann þá báða við Guð á krossinum, þar sem hann deyddi fjandskapinn.). þetta var uppfyllt frekar en að vera ógilt af fagnaðarerindinu.(3.) Dómari Lögmálsins, Lögmálið sem stjórnaði borgaralegum stefnum hinnar hebresku þjóðar.(4.) Boðskapur Lögmálsins opinberar vilja Guðs um hegðun eða framkomu mannsins, og er bundið öllum mönnum til endatíma. Þetta var kunngert á Sínaí. Þetta er fullkomið (Sálm.19:8... Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran.), eilíft eða varanlegt(Matt5:17. Ætlið ekki, að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema, heldur uppfylla., Matt.5:18. Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok, mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu, uns allt er komið fram.), heilagt (Róm.7:12. Þannig er þá lögmálið heilagt og boðorðið heilagt, réttlátt og gott.), gott, andlegt (Róm.7:14. Vér vitum, að lögmálið er andlegt, en ég er holdlegur, seldur undir syndina.), og geysilega víðáttumikið (Sálm.119:96. Á allri fullkomnun hefi ég séð endi, en þín boð eiga sér engin takmörk.). þó svo að bindiningin sé yfir allt, að þá erum við ekki undir lögmáli verka. (Gal.3:17. Með þessu vildi ég sagt hafa: Sáttmála, sem áður var staðfestur af Guði, getur lögmálið, sem kom fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, ekki ónýtt, svo að það felli fyrirheitið úr gildi.).

(5.) Öryggi Lögmálsins er lífsregla sem er aðeins reist á vilja Guðs. Þau eru rétt því að Guð fyrirskipaði þau.

(6.) Boðskapur öryggi Lögmálsins er skipaður af Guði og því er það rétt..

 

Það er ekki hægt að láta það fara fram hjá sér þær þrætur um hvort boðorðin 10 séu í gildi eða ekki. Sumir vilja meina að boðorðin séu enn í gildi og aðrir ekki. Ég trúi því persónulega sjálfur að eftir Golgata sé aðeins eitt boðorð sem uppfyllir öll hin og það er kærleikurinn. Við skulum koma víða við í Nýja Sáttmálanum og sjá hvað hann hefur að segja um málið. Við verðum að læra að þekkja orðið og byggja trú okkar á því en ekki mannasetningum. Því tel ég það allgera skildu mína að rannsaka þetta nánar og þá er bara að hefjast handa.

Matt.5:17... Ætlið ekki, að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema, heldur uppfylla.

Jesús kom til að uppfylla en ekki til að afnema. En þá er að spyrja sig með hverju uppfyllti hann lögmálið? Róm.13:10... Kærleikurinn gjörir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.

En hvað með þegar Jesús segir nýtt boðorð gef ég yður er það ekki í andstöðu við það að hann kom til að uppfylla en ekki til að afnema? Í fyrstu virðist svo vera en við nánari athugun sjáum við að svo er ekki. Við verðum að skoða í hvaða samhengi Jesús er að segja hlutina. Þarna er hann í raun að segja um það sem koma skal en ekki það sem var á þessum tíma því hann var ekki en búin að uppfylla lögmálið. Jóh.13:34-35... Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan.(35) Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.

 

En hvað þá með þegar Jesús talar um hið æðsta boðorð er það þá ekki líka í andstöðu við það sem þú ert að segja? Nei svo er ekki við skulum líta á versin. Matt.22:34-40... (34) Þegar farísear heyrðu, að hann hafði gjört saddúkea orðlausa, komu þeir saman.(35) Og einn þeirra, sem var lögvitringur, vildi freista hans og spurði:(36) Meistari, hvert er hið æðsta boðorð í lögmálinu?(37) Hann svaraði honum: Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum.(38) Þetta er hið æðsta og fremsta boðorð.(39) Annað er þessu líkt: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.(40) Á þessum tveimur boðorðum hvílir allt lögmálið og spámennirnir. Þegar við skoðum þessi vers vandlega að þá sjáum við að rauði þráðurinn er Kærleikurinn. Að elska Guð og náungan. Jesús bendir mjög oft á að það er kærleikurinn sem hann vill sjá í lífi okkar en ekki hversu klár við erum að fara eftir reglum. Þegar þú átt kærleika að þá elskar þú Guð og náungan. Því eins og við sjáum í Róm 13:10 að þá gerir kærleikurinn ekki náunganum mein. Kærleikurinn uppfyllir lögmálið. En við skulum skoða betur hvað ritningin segir um þetta mál því enn eru nokkur atriði eftir sem gætu virst vera í vafa.

 

Núna skulum við skoða það þegar Páll talar um að við séum ekki lengur undir lögmáli. Róm.6:15-18... (15) Hvað þá? Eigum vér að syndga, af því að vér erum ekki undir lögmáli, heldur undir náð? Fjarri fer því.(16) Vitið þér ekki, að ef þér bjóðið öðrum sjálfa yður fyrir þjóna og hlýðið honum, þá eruð þér þjónar þess, sem þér hlýðið, hvort heldur er syndar til dauða eða hlýðni til réttlætis?(17) En þökk sé Guði! Þér voruð þjónar syndarinnar, en urðuð af hjarta hlýðnir þeirri kenningu, sem þér voruð á vald gefnir.

(18) Og þér gjörðust þjónar réttlætisins eftir að hafa verið leystir frá syndinni. Hér er Páll að tala um að við þurfum ekki að færa framar fórnir fyrir syndir okkar ef við brjótum lögmál Guðs. Því að við höfum verið leyst frá valdi syndarinnar. Laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú Drottni vorum. Kristur hefur keypt okkur með dýru blóði sínu. Þess vegna erum við ekki okkar eigin og þess vegna höldum við ekki áfram að syndga því þetta snýst um að deyja af sjálfum sér og lifa í Kristi. Gal.2:20-21... (20) Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Lífinu, sem ég lifi nú hér á jörð, lifi ég í trúnni á Guðs son, sem elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig.(21) Ég ónýti ekki náð Guðs. Ef réttlæting fæst fyrir lögmál, þá hefur Kristur dáið til einskis. Þetta snýst um að vera undirgefin Heilögum Anda og leyfa honum að leiða sig áfram, annars er okkur ógerlegt að geta lifað í kærleikanum. Það er sagt að við líkjumst þeim er við umgöngumst. Guð er kærleikur. Jesús Kristur býr í mér í gegnum Heilagan Anda. Þess vegna til þess að kærleikurinn fái að vaxa í lífi mínu að þá verð ég að deyja af sjálfum mér og lifa í Kristi. Jesús sagði að sá sem týnir lífi sínu hans(Jesú) vegna mun finna það. Það er vegna þess að vilji mannsins er allveg hræðilega eigingjarn og sjálfselskur sem er allgjörlega í andstöðu við vilja Guðs. Því Guð er kæreikur. Kærlekurinn gefur en eigingirnin tekur. Þetta tvennt togast stöðuglega á þess vegna verð ég að biðja Drottinn stöðuglega um hjálp til að takast á við lífið svo að líf mitt mótist eftir hans vilja og hann fái að vera skipstjórinn í lífi mínu. Þess vegna verð ég að gefa mig á vald Guðs. Það talar um í Jakobsbréfinu að við eigum að nálægja okkur Guði svo satan flýji okkur. Jesús sagði líka vertu í mér þá verð ég í þér.

 

En þá kemur að því þegar Páll talar um að við séum dáin lögmálinu. Er það ekki líka að tala gegn sjálfu sér? Nei svo er ekki þetta er nákvæmt framhald af því sem við skoðuðum hér rétt fyrir ofan. Páll er í raun að tala þarna um hin Gyðinglegu boðorð. Gamli Sáttmálinn var fyrir Gyðingana og við stóðum Guðvana fyrir utan hann. En núna eftir að Kristur hefur keypt okkur með dýru blóði sínu og þjáningum á krossinum að þá þurfa menn ekki lengur að gefa sig bókstafnum á vald því að kristur hefur komið með annan og betri sáttmála. Róm.7:1-6... -1- Vitið þér ekki, bræður, ég er hér að tala til þeirra, sem lögmál þekkja, að lögmálið drottnar yfir manninum svo lengi sem hann lifir.(2) Gift kona er að lögum bundin manni sínum, meðan hann lifir. En deyi maðurinn, er hún leyst undan lögmálinu, sem bindur hana við manninn.(3) Því mun hún hórkona teljast, ef hún, að manninum lifandi, verður annars manns. En deyi maðurinn er hún laus undan lögmálinu, svo að hún er ekki hórkona, þótt hún verði annars manns.(4) Eins er um yður, bræður mínir. Þér eruð dánir lögmálinu fyrir líkama Krists, til þess að verða öðrum gefnir, honum sem var upp vakinn frá dauðum, svo að vér mættum bera Guði ávöxt.(5) Þegar vér lifðum að holdsins hætti, störfuðu ástríður syndanna, sem lögmálið hafði vakið, í limum vorum, svo að vér bærum dauðanum ávöxt.(6)En nú erum vér leystir undan lögmálinu, þar sem vér erum dánir því, sem áður hélt oss bundnum, og þjónum í nýjung anda, en ekki í fyrnsku bókstafs. Páll er hér líka að segja þið þurfið ekki að rembast við að lifa eftir Lögmáli Guðs því að hann hefur sent okkur Anda sinn til að fylla líf okkar og hjálpa okkur að ganga sinn veg. Sem við gátum ekki gert í okkar mannlega mætti. Biblían talar alldrei gegn sjálfri sér þegar það koma vafa atriði að þá þurfum að skoða versin og bera þau saman. Og við megum ekki heldur slíta orð Guðs úr samhengi. Það verður að taka það í heild sinni. Í 8 kaflanum í Róm bendir Páll okkur á að lifa í Andanum. Hann er að segja verið í stöðugu samfélagi við Drottinn svo að holdið hremmi ykkur ekki. Því við verðum að skilja. Að þegar við vorum Guðvana að þá vorum við andlega dauð og lifðum eftir háttum holdsins. En þegar Kristur kom inn í líf okkar lífgaði hann okkar andlega mann við. Þá erum við allt í einu í stríði við sjálf okkur. Holdið vill stjórna okkur og Andinn líka. Þess vegna bendir Páll okkur á að það er best fyrir okkur að vera í stöðugu samfélagi við Drottinn. Og að við biðjum Heilagan Anda um að leiða okkur áfram hvern dag. Svo við fáum skilið hver vilji Guðs sé. Spámennirnir spá því fram í tíman fyrir komu Heilags Anda að þegar hann kemur yfir okkur að þá lifnar lögmálið við innra með okkur. Spámennirnir segja að lögmál Guðs verði ritað í hjarta okkar. Þegar ég tók við Kristi langaði mig ekki lengur að stela, ljúga og gera marga slæma hluti. Það er ekki lengur má ekki má ekki. Heldur er það ég vil ekki ég vil ekki. Við förum að elska það að gera vilja Guðs þegar við förum að skilja náðina.

 

Hvað er innifalið í kærleikanum?

1.Kor.13:4-8a...(4) Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.(5) Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.(6) Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.(7) Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.(8a)Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. Þetta er það sem er innifalið í Kærleikanum. Ég hugsa að við verðum að biðja Drottinn um náð að haga okkur á þann hátt sem kærleikurinn gerir. En þetta er það sem við eigum að lifa eftir.

 

Hvernig get ég lifað í kærleikanum?

Róm.5:5... En vonin bregst oss ekki, því að kærleika Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyrir Heilagan Anda, sem oss er gefinn. Þú þarft að meðtaka Heilagan Anda til þess að geta fengið kærleika til þess að elska aðra. Það er ógerlegt fyrir þig að reyna elska í eigin mætti á þann hátt sem þú getur elskað með kærleika Guðs sem þú færð að gjöf þegar Heilagur Andi kemur yfir þig.

Jóh.15:9-17... (9) Ég hef elskað yður, eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðugir í elsku minni.(10) Ef þér haldið boðorð mín, verðið þér stöðugir í elsku minni, eins og ég hef haldið boðorð föður míns og er stöðugur í elsku hans.(11) Þetta hef ég talað til yðar, til þess að fögnuður minn sé í yður og fögnuður yðar sé fullkominn.(12) Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður.(13) Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.(14) Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður.(15) Ég kalla yður ekki framar þjóna, því þjónninn veit ekki, hvað herra hans gjörir. En ég kalla yður vini, því ég hef kunngjört yður allt, sem ég heyrði af föður mínum.(16) Þér hafið ekki útvalið mig, heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt, sem varir, svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni.(17)Þetta býð ég yður, að þér elskið hver annan.

Síðasta versið ég býð yður er skipunarorð. Í King James er sagt i command you. Sem þýðir ég skipa ykkur orðið býð yður þýðir líka skipa ykkur. Jæja á þá allt í einu að fara skipa manni að elska aðra. Gefur ekki kærleikurinn alltaf frjálst val? Jú kærleikurinn gefur alltaf frjálst val. En veist þú hvað kærleikur þýðir það er að segja orðið sjálft? Það þýðir að gefa það besta þar sem þörfin er mest. Þegar þú ert í Kristi og hann er í þér að þá getur þér ekki liðið vel með það að ljúgja að sjálfum eða sjálfri þér að þú elskir Guð en hatir náungan. Sá sem hatar náungan getur ekki elskað Guð. 1.Jóh.4:7-21... (7) Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er frá Guði kominn, og hver sem elskar er af Guði fæddur og þekkir Guð.(8) Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.(9) Í því birtist kærleikur Guðs meðal vor, að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að vér skyldum lifa fyrir hann.(10) Þetta er kærleikurinn: Ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.(11) Þér elskaðir, fyrst Guð hefur svo elskað oss, þá ber einnig oss að elska hver annan.(12) Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef vér elskum hver annan, þá er Guð stöðugur í oss og kærleikur hans er fullkomnaður í oss.(13) Vér þekkjum, að vér erum stöðugir í honum og hann í oss, af því að hann hefur gefið oss af sínum anda.(14) Vér höfum séð og vitnum, að faðirinn hefur sent soninn til að vera frelsari heimsins.(15) Hver sem játar, að Jesús sé Guðs sonur, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði.(16) Vér þekkjum kærleikann, sem Guð hefur á oss, og trúum á hann. Guð er kærleikur, og sá sem er stöðugur í kærleikanum er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum.(17) Með því er kærleikurinn orðinn fullkominn hjá oss, að vér höfum djörfung á degi dómsins, því að vér erum í þessum heimi eins og hann er.(18) Ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn felur í sér hegningu, en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni.(19) Vér elskum, því að hann elskaði oss að fyrra bragði.(20) Ef einhver segir: Ég elska Guð, og hatar bróður sinn, sá er lygari. Því að sá sem elskar ekki bróður sinn, sem hann hefur séð, getur ekki elskað Guð, sem hann hefur ekki séð.(21) Og þetta boðorð höfum vér frá honum, að sá sem elskar Guð á einnig að elska bróður sinn.

 

Niðurstaðan kemur mér kannski ekki mikið á óvart en hún sýnir mér hvað Orð Guðs er stöðugt og hvernig allt helst í hendur í orðinu. Niðurstaðan er sú að tað er eitt boðorð eftir Golgata sem uppfyllir hin Gyðinglegu boðorð, það er kærleikurinn. Þau eru uppfyllt með kærleikanum.En boðorðin eru enn í fullu gildi. Ef það væri ekki neitt lögmál sem myndi sýna okkur hvað er synd að þá væri lögmálsleysi. En það sem Biblían segir þið þurfið ekki lengur að rembast í ykkar mannlega mætti að fylgja þeim. Því Heilagur Andi mun hjálpa okkur að fylgja þeim, þess vegna þjónum við ekki í fyrnsku bókstafs heldur í anda. Því það er Heilagur Andi sem leiðir okkur áfram. Kærleikurinn er okkur gefin þegar Heilagur Andi kemur yfir okkur. Jesús segir að hann gefi okkur þetta boðorð að elska Guð og náungan sem er innifalið í kærleikanum. Þess vegna má ekki slíta orð Guðs úr samhengi. Kærleikurinn er ekki nýr, en það eru nýjar áherslur sem Guð sýnir okkur. Hann er einfaldlega að benda okkur á að við erum sköpuð ófullkomin svo við fáum fullnægju okkar hjá honum. Mennirnir geta ekki lifað fullkomnu lífi en það gerði Kristur. Hann er fullkomnari túarinnar og hann er fullkomin fyrir okkur. Það er hann sem réttlætir okkur og gerir það kleyft að við fáum að gjöf Heilagan Anda til þess að hjálpa okkur að ganga sinn veg. Páll bendir okkur á að fyllast stöðuglega Heilögum Anda og leyfa honum að vera leiðsögumaðurinn okkar. Það er miklu einfaldara að leiðast af Anda Guðs en að rembast að fara eftir bókstafnum í eigin mætti. Páll  talar um í 3 kaflanum í 2.Korintubréfi að þjónusta bókstafsins sé þjónusta dauðans. En hér í lokin ætla ég að láta fylgja með nokkra ritningarstafi sem staðfesta það sem ég hef skrifað hér. 2.Kor.3... (1) Erum vér nú aftur teknir að mæla með sjálfum oss? Eða mundum vér þurfa, eins og sumir, meðmælabréf til yðar eða frá yður?(2) Þér eruð vort bréf, ritað á hjörtu vor, þekkt og lesið af öllum mönnum.(3) Þér sýnið ljóslega, að þér eruð bréf Krists, sem vér höfum unnið að, ekki skrifað með bleki, heldur með anda lifanda Guðs, ekki á steinspjöld, heldur á hjartaspjöld úr holdi.(4) En þetta traust höfum vér til Guðs fyrir Krist.(5) Ekki svo, að vér séum sjálfir hæfir og eitthvað komi frá oss sjálfum, heldur er hæfileiki vor frá Guði,(6) sem hefur gjört oss hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála, ekki bókstafs, heldur anda. Því að bókstafurinn deyðir, en andinn lífgar.(7) En ef þjónusta dauðans, sem letruð var og höggvin á steina, kom fram í dýrð, svo að Ísraelsmenn gátu ekki horft framan í Móse vegna ljómans af ásýnd hans, sem þó varð að engu,(8) hversu miklu fremur mun þá þjónusta andans koma fram í dýrð?(9) Ef þjónustan, sem sakfellir, var dýrleg, þá er þjónustan, sem réttlætir, enn þá miklu auðugri að dýrð.(10) Í þessu efni verður jafnvel það, sem áður var dýrlegt, ekki dýrlegt í samanburði við hina yfirgnæfandi dýrð.(11) Því að ef það, sem að engu verður, kom fram með dýrð, þá hlýtur miklu fremur hið varanlega að koma fram í dýrð.(12) Þar eð vér nú höfum slíka von, þá komum vér fram með mikilli djörfung(13) og gjörum ekki eins og Móse, sem setti skýlu fyrir andlit sér, til þess að Ísraelsmenn skyldu ekki horfa á endalok ljóma þess, sem var að hverfa.(14) En hugur þeirra varð forhertur. Því allt til þessa dags hvílir sama skýlan yfir upplestri hins gamla sáttmála og henni hefur ekki verið svipt burt, því að aðeins í Kristi hverfur hún.(15) Já, allt til þessa dags hvílir skýla yfir hjörtum þeirra, hvenær sem Móse er lesinn.(16) En þegar einhver snýr sér til Drottins, verður skýlan burtu tekin.(17) Drottinn er andinn, og þar sem andi Drottins er, þar er frelsi.(18) En allir vér, sem með óhjúpuðu andliti endurspeglum dýrð Drottins, ummyndumst til hinnar sömu myndar, frá dýrð til dýrðar. Þetta gjörir andi Drottins.

 

Róm.8:1-17. (1) Nú er því engin fordæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú.(2) Lögmál lífsins anda hefur í Kristi Jesú frelsað þig frá lögmáli syndarinnar og dauðans.(3) Það sem lögmálinu var ógerlegt, að því leyti sem það mátti sín einskis fyrir holdinu, það gjörði Guð. Með því að senda sinn eigin son í líkingu syndugs manns gegn syndinni, dæmdi Guð syndina í manninum.(4) Þannig varð réttlætiskröfu lögmálsins fullnægt hjá oss, sem lifum ekki eftir holdi, heldur eftir anda.(5) Því að þeir sem láta stjórnast af holdinu, hyggja á það sem holdsins er, en þeir, sem láta stjórnast af andanum, hyggja á það sem andans er.(6) Hyggja holdsins er dauði, en hyggja andans líf og friður.(7) Hyggja holdsins er fjandskapur gegn Guði, með því að hún lýtur ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það ekki.(8) Þeir, sem eru holdsins menn, geta ekki þóknast Guði.(9) En þér eruð ekki holdsins menn, heldur andans menn, þar sem andi Guðs býr í yður. En hafi einhver ekki anda Krists, þá er sá ekki hans.(10) Ef Kristur er í yður, þá er líkaminn að sönnu dauður vegna syndarinnar, en andinn veitir líf vegna réttlætisins.(11) Ef andi hans, sem vakti Jesú frá dauðum, býr í yður, þá mun hann, sem vakti Krist frá dauðum, einnig gjöra dauðlega líkami yðar lifandi með anda sínum, sem í yður býr.(12) Þannig erum vér, bræður, í skuld, ekki við holdið að lifa að hætti holdsins.(13) Því að ef þér lifið að hætti holdsins, munuð þér deyja, en ef þér deyðið með andanum gjörðir líkamans, munuð þér lifa.(14) Því að allir þeir, sem leiðast af anda Guðs, þeir eru Guðs börn.(15) En þér hafið ekki fengið anda, sem gjörir yður að þrælum að lifa aftur í hræðslu, heldur hafið þér fengið anda, sem gefur yður barnarétt. Í þeim anda köllum vér: Abba, faðir!(16) Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn.(17) En ef vér erum börn, þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar Guðs, en samarfar Krists, því að vér líðum með honum, til þess að vér einnig verðum vegsamlegir með honum.

Ég vona að þetta hafi verið þér að gagni og að þú getir tekið afstöðu með Orði Guðs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Takk fyrir þetta ég er sammála þér með lögmálið sjá Kol 2:14. Guð blessi þig og þína í Jesú nafni Amen.

Aðalbjörn Leifsson, 29.10.2007 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband