Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

byrjaður að blogga aftur

Það getur verið erfitt að koma sér af stað aftur eftir góða bloggpásu. Ég var vanur að blogga daglega í nokkur ár og því kominn tími á smá pásu í þessu.

 Það er margt sem leikur um huga manns þessa dagana. Þetta hafa verið skrítnir tímar undanfarið og mörg óhöpp dunið á , á stuttum tíma. En einhvern vegin virðist vera allveg sama hvað lífið hefur upp á að bjóða að þá kemst maður í gegnum allt þegar maður er með Guð með sér í liði.

En það sem er efst ú huga mínum núna er hvað syndin er orðin mikil og fólk oft bara orðið dofið fyrir henni og maður eflaust eitthvað sjálfur. Jesús sagði að við værum salt jarðar , ef saltið dofnar , með hverju á að salta þá.

Engin synd er nokkrum manni til blessunar. Biblían er full af leiðbeiningum af því hvað gerist þegar maður er í sínum eigin vilja. Það fer allt í tóma vitleysu. Eflaust gæti maður tekið dæmi um sjálfan sig líka. En ég sé ekki betur að það séu þannig tímar núna að maður fær ekki að komast upp með að gera neitt í leyni, allt verður opinberað.

En afhverju opinberað? Eflaust vegna þess svo að fólk iðrist og sjái allvarleika þess að leika sér að eldinum. Þó svo að margir hafi hrasað undanfarið á einhvern hátt að þá finnst mér mikill sigur vera handan við hornið og miklar jákvæðar breytingar framundan.

Alla vegana hafa þeir tímar verið þannig hjá mér undanfarið að hreinsun og endurmat hefur átt sér stað í lífi mínu. Því að það sem stenst ekki frammi fyrir Guði má ekki krassera í lífi manns. Það sem manni langar að sjá er að allt Ísland frelsist, en það gerist ekki nema maður byrji á sjálfum sér og sé heill í því sem maður er að gera.

En ég rálegg fólki að fela Drottni vegu sína og treysta honum því hann mun vel fyrir sjá :)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband