Færsluflokkur: Bloggar

Munurinn á fyrri og síðari Adam ;)

Róm 5:17
Ef misgjörð hins eina manns hafði í för með sér, að dauðinn tók völd með þeim eina manni, því fremur munu þá þeir, sem þiggja gnóttir náðarinnar og gjafar réttlætisins, lifa og ríkja vegna hins eina Jesú Krists.

Hugleiðing mín út frá þessu versi er ákveðið lögmál. Adam hinn fyrsti , eða réttara sagt Eva óhlýðnast Guði og tælir Adam til falls. Þar sem karlmaðurinn er höfuð fjölskildurnar að þá er Adam ábyrgur gagnvart falli mannsins, þrátt fyrir að það hafi verið Eva sem óhlýðnaðist fyrst. Við Fall mannsins kemur inn vírus sem heitir synd. Gallinn við þennan vírus er að hann gengur í erfðir frá manni til manns. Við vitum ef við eigum tölvu og ef það kemur vírus í hana. Þá breytir engu hversu mikið af góðu efni þú setur í tölvuna. Ef þú hreinsar ekki vírusinn burt að þá heldur hann alltaf áfram að skemma út frá sér.

Jesús sem er hinn síðari Adam má líkja við vírusvörn. Blóð Jesú Krists hreinsaði burt alla syndina (vírusinn) sem hafði gengið í erfðir frá Adam til dagsins í dag og allt til enda veraldar. Þegar við komum til Krists, þá endurfæðumst við og verðum ný sköpun í Kristi. Í Kristi er enga synd að finna. Hann er eins og nýr ættstofn, hann er hinn fyrsti maður nýrrar ættar eða ættfaðir. Þegar við endurfæðumst. Þá erum við ættleidd frá hinum fyrra Adam, til hins síðari Adams sem er Jesús Kristur. Við verðum hrein og lýtalaus börn Guðs. Ef við værum tölva, þá væri Jesús bæði hið nýja stýrikerfi og vírusvörn, því hann hefur hreinsað burt alla synd ( vírus) úr lífi okkar. Hann er búin að afgreiða syndavandamálið. Það sem ég á við er að Jesús hefur gert okkur fullkomnlega hrein og í honum dæmumst við ekki, því að hann hefur þegar tekið á sig refsingu og dóm syndarinnar.

Við vitum það að það þarf ekki að dæma í sama málinu tvisar ef það er búið að greiða sektina...


Sjá Guðs lamb sem ber syndir heimsins

Jóh.1:29 Daginn eftir sér Jóhannes Jesú koma til sín og segir: Sjá Guðs lamb sem ber synd heimsins.

Það sem ég hef verið að velta fyrir mér þarna og þá með sérstöku tiliti til þess að Jesús var gyðingur og gyðingum var kennt að aðrar þjóðir væru óhreinar. Gyðingar máttu ekki heldur eiga samneiti við aðrar þjóðir. Sumir segja að gyðingar hafi litið á aðra jafna hundum.

Jóhannes skírari hefur þá fengið opinberun frá Föðurnum um það að Jesús myndi ekki bara deyja fyrir syndir gyðinga heldur alls heimsins.

Fyrst þegar fagnaðarerindið er predikað að þá var bara predikað til Gyðinga. Pétur Postuli hélt kyrru um í Jerúsalem og var ekkert að fara lengra með fagnaðarerindið, og þá sérstaklega þar sem Gyðingum var kennt að líta niður á aðrar þjóðir.

En síðan frelsast Páll Postuli sem hét reyndar Sál fyrst. Honum er fengið það verk að fullna fagnaðerindið. Það er að segja að taka má móti Fagnaðarerindinu til fulls frá himnum ofan. Því að fagnaðarerindið er ekki frá mönnum komið heldur Guði.

Það er svoldið merkilegt sem Guð sýnir Pétri svo, hann fær sýn og sér óhrein dýr eins og svín oflr. Drottinn segir svo við hann ekki segja að það sé óhreint sem ég hef lýst yfir hreint. samhengið í þessum versum er það að Drottinn er að sýna Pétri að fagnaðererindið ( Góðu Fréttirnar) skuli predikað til allra manna allt til enda veraldar.

Í Róm.1:16 stendur að Fagnaðarerindið er Kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir, Gyðinginn fyrst og aðra síðan (Nýja þýðingin)

Páll fékk líka það hlutverk að boða heiðingjunum sem erum við góðu fréttirnar um Jesú Krist.

Þannig að ef maður fer aðeins til baka að þá vissi Jóhannes skírari að fagnaðarerindið yrði predikað öllum mönnum ekki bara gyðingum.

það sem er líka merkilegt að skoða er að menn slátruðu lömbum til að fá fyrirgefningu synda sinna í gamla sáttmálanum. En fyrirgefning þýddi þá að hylja yfir. Syndin var þarna en hún var falin með blóði, og menn þurftu stöðuglega að vera að fórna til að láta hylja yfir syndir sínar.

En Jesús sem er lamb Guðs kemur með hina fullkomnu fórn og það þarf alldrei framar að færa fórn til fyrirgefningar syndar okkar. Því að fórn Jesú var fyrir allan heiminn þá og allt til enda veraldar eða þar til Jesús snýr aftur og sækir þá sem tilheyra honum. Orðið fyrirgefning fær líka nýja merkingu á Golgata, það þýðir ekki lengur að hylja yfir, heldur að afmá. Jesús hefur afmáð syndina í eitt skipti fyrir öll. Og þetta er það fullkomin fyrirgefning að þegar Guð lítur á okkur að þá er eins og við höfum alldrei syndgað, þvi hann sér Jesús í okkur. Við erum fullkomnlega réttlætt frammi fyrir Guði og leyst undan valdi syndarinnar. Það sem við höfum gert og eigum eftir að gera hefur okkur verið fyrirgefið.

Ég er ekki að boða það að, af því að Guð hefur fyrirgefið okkur allt að við eigum þá að halda áfram að syndga og finnast það í lagi því að okkur er hvort sem er fyrirgefið. Biblían kallar það að freista Krists. Páll Postuli tekur vel á þessu og segir að við eigum að álíta okkur dáin syndinni. Hann útskýrir líka að við eigum ekki við syndavandamál að stríða lengur því það hefur verið leyst í eitt skipti fyrir öll. Það sem Páll bendir á í rómverjabréfinu að við erum í stríði við girndina í okkur sem vill gera fjandsamlega hluti, girnast í peninga, hluti sem aðrir eiga, kynlíf utan hjónabands oflr sem er gegn lögmáli Krists. Hann kemur með þá lausn í 8 kaflanum í Rómverjabréfinu að við eigum að lifa í andanum og þá fullnægjum við alls ekki girndum holdsins.


Ferðin inn í fyrirheitna landið

FERÐIN INN Í FYRIRHEITNALANDIÐ..
Ganga okkar með Guði í dag, trúarganga okkar og hindranir til að sigrast á... Samantekt:Sigvarður Hans Hilmarsson úr bókinni sönn karlmennska...

Það sem við ætlum að skoða í dag er ferð okkar inn í fyrirheitna landið...

Við byrjum þar sem Ísraelsmenn eru fastir í ánauð í Egyptalandi, Drottinn hafði útvalið Móse þjón sinn til að leiða þjóðina úr ánauðinni og inn í fyrirheitna landið. Ísraelsmenn hefðu getað verið einhverja daga að fara þá leið sem þeir þurftu að fara inn til fyrirheitna landsins. Enn þeir voru 40ár í eyðimörkinni og þeir sem upphaflega áttu að komast inn komust ekki vegna fimm misgjörða sem þýðir það að það átti sér stað kynslóðakipti í eyðimörkinni. Þessi nýja kynslóð þekkti ekki Egyptaland og gat því ekki snúið við þangað... Þeim var ætlað að ganga inn í hið fyrirheitnaland..

Það sem ég ætla að gera nú er að yfirfæra þetta yfir í nútímann. Egyptaland er táknræn mynd upp á heiminn. Þegar líður Drottins er í ánauð í Egyptalandi sem er heimurinn. Að þá trúi ég því að Drottinn vilji leiða okkur þaðan burt og inn í ríki síns elskaða sonar Drottins Jesú Krists..Ef Drottinn hefði leitt Ísraelsmenn strax inn í Fyrirheitna landið að þá hefðu þeir hugsanlega snúið strax aftur til baka... Enn nú skulum við skoða þessar fimm hindranir sem gerðu það að verkum að þeir komust ekki inn í Fyrirheitna landið.

1.Kor.10.1-22.. 1Kor 10:1-22
-1- Ég vil ekki, bræður, að yður skuli vera ókunnugt um það, að feður vorir voru allir undir skýinu og fóru allir yfir um hafið.
-2- Allir voru skírðir til Móse í skýinu og hafinu.
-3- Allir neyttu hinnar sömu andlegu fæðu
-4- og drukku allir hinn sama andlega drykk. Þeir drukku af hinum andlega kletti, sem fylgdi þeim. Kletturinn var Kristur.
-5- En samt hafði Guð enga velþóknun á flestum þeirra og þeir féllu í eyðimörkinni.
-6- Þessir hlutir hafa gjörst sem fyrirboðar fyrir oss, til þess að vér verðum ekki sólgnir í það, sem illt er, eins og þeir urðu sólgnir í það.
-7- Verðið ekki skurðgoðadýrkendur, eins og nokkrir þeirra. Ritað er: Lýðurinn settist niður til að eta og drekka, og þeir stóðu upp til að leika.
-8- Drýgjum ekki heldur hórdóm, eins og nokkrir þeirra drýgðu hórdóm, og tuttugu og þrjár þúsundir féllu á einum degi.
-9- Freistum ekki heldur Drottins, eins og nokkrir þeirra freistuðu hans, þeir biðu bana af höggormum.
-10- Möglið ekki heldur eins og nokkrir þeirra mögluðu, þeir fórust fyrir eyðandanum.
-11- Allt þetta kom yfir þá sem fyrirboði, og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn yfir.
-12- Sá, er hyggst standa, gæti því vel að sér, að hann falli ekki.
-13- Þér hafið ekki reynt nema mannlega freistingu. Guð er trúr og lætur ekki freista yðar um megn fram, heldur mun hann, þegar hann reynir yður, einnig sjá um, að þér fáið staðist.
-14- Fyrir því, mínir elskuðu, flýið skurðgoðadýrkunina.
-15- Ég tala til yðar sem skynsamra manna. Dæmið þér um það, sem ég segi.
-16- Sá bikar blessunarinnar, sem vér blessum, er hann ekki samfélag um blóð Krists? Og brauðið, sem vér brjótum, er það ekki samfélag um líkama Krists?
-17- Af því að brauðið er eitt, erum vér hinir mörgu einn líkami, því að vér höfum allir hlutdeild í hinu eina brauði.
-18- Lítið á Ísraelsþjóðina. Eiga þeir, sem fórnirnar eta, ekki hlut í altarinu?
-19- Hvað segi ég þá? Að kjöt fórnað skurðgoðum sé nokkuð? Eða skurðgoð sé nokkuð?
-20- Nei, heldur að það sem heiðingjarnir blóta, það blóta þeir illum öndum, en ekki Guði. En ég vil ekki, að þér hafið samfélag við illa anda.
-21- Ekki getið þér drukkið bikar Drottins og bikar illra anda. Ekki getið þér tekið þátt í borðhaldi Drottins og borðhaldi illra anda.
-22- Eða eigum vér að reita Drottin til reiði? Munum vér vera máttugri en hann?

Þessi fimm atriði eru: Girnd, Skurðgoðadýrkun, Hórdómur, Að freista Krists, Möglun.

Við skulum taka þessi fimm atriði og skoða þau nánar....

1) Girnd..
Girnd er ekki aðeins kynferðisleg. Girnd er þegar maðurinn hugsar sífellt um eigin þarfir án tilits til Guðs eða annara og er upptekinn af því sem hann vill sjálfur. Þetta er að hugsa um að fullnægja holdinu eða upphefja það. Kærleikurinn er frá Guði og kærleikurinn gefur alltaf. Kærleikurinn leitast við að gera vilja Guðs, því að eins og segir því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, Guð er kærleikur og kærleikurinn gefur, enn girndin heimtar. Hún er fullkomnlega eigingjörn. Kærleikurinn gefur enn girndin tekur. Líf okkar er oft flakkandi á milli þessara tveggja atriða, kærleikans og girndarinnar. Við sjáum það með göngu Ísraelsmanna í eyðimörkinni að fætur þeirra báru þá til Fyrirheitnalandsins enn hjarta þeirra var enn í Egyptalandi. Það er auðvelt að sjá þegar mannskeppnan girnist eitthvað. Þá vill hún fullnægja sjálfri sér á kostnað annara. Girndin sést líka greinilega í hjónabandi, það er þegar annar aðilinn vill fullnægja þörfum sínum á tilits við makann. Enn kærleikurinn sést þegar makinn kemur til móts við þarfir hins makans án þess að hugsa stöðuglega um sjálfa sig. Karlmenn geta átt það til að vilja bara fullægja sínum þörfum og eins er girndin hjá konunum þegar þær fara að misnota kretidkortið þannig að reikningar hlaðist upp sem fjölskyldan getur ekki borgað og þungar byrðar hlaðast á fjölskylduna. Girndin hún heldur manninum frá því að fullnýta þá hæfileika sem Guð hefur gefið honum til þjóna sér....

2) Skurðgoðadýrkun

Þegar líf okkar verður þannig að það fer að snúast um annað enn Guð og aðrir hlutir taka fyrsta sætið í hjarta okkar þá er það skurðgoðadýrkun. Það getur verið, völd, áhrif, menntun,peningar, viðskipti, trúarbrögð, vinsældir, sjálfselska og klám getur orðið skurðgoð. Sumir falla að fótum viðskiptana enn aðrir gera líkamsrækt og íþróttir að musteri sínu. Enn aðrir hneigja höfuð sitt við bjölluhljóm peningakassans. Sumir prestar og forstöðumenn fara jafnvel að tilbiðja þjónustu sína. Þeir verða svo háðir þjónustu sinni að þeir gefa sér ekki tíma til að tilbiðja Guð, dvelja í nærveru hans eða eyða með honum tíma. Sjónvarpstæki getur orðið skurðgoð sumra. Allt klám er skurðgoðadýrkun. Klám byggist á hæfileika mannsins til að ýmynda sér og kalla fram hugmyndir sem fróa honum og hann gefur sig á vald. Ég heyrði um eina konu sem fór að stunda ýmyndað kynlíf, hún var svo eftir sig að hún gat ekki einu sinni eldað matinn fyrir manninn sinn. Og sjálf hélt hún því fram að þetta væri verri enn áfengissýki. Atvinna og vinnustaður hefur í mörgum tilfellum orðið að skurðgoði nútíma mannsins. Hann fórnar jafnvel fjölskyldu sinni fyrir hagsmuni fyrirtækisins. Margir leikarar tilbiðja sjálfa sig, öllum getur orðið það á, en leikurum er meiri hæta búin vegna þeirrar athyglar sem þeir fá frá aðdáendum sínum.

3) Hórdómur.

Hórdómur spannar íllar kynferðislegar syndir. Synd er alltaf synd, alveg sama hvernig þú stafar hana. Hórdómur er algengur og kynferðisleg lausung er víðast hvar viðurkennd, nema í Biblíunni. Það er enginn furða að menn vilji brenna hana, hafna henni og krossfesta hana. Biblían eða Orðið markar enn viðmið trúarinnar, leggur lífsreglurnar og opinberar persónuleika Guðs. Í frásögum af Samson, Davíð konungi og ýmsum öðrum er fólgin mikilvæg kennsla um afleiðingar kynferðislegra synda. Samt erum við hin Kristnu enn við sama heygarðshornið þrátt fyrir allar þær aðvarinir sem við fáum frá ritningunni. Kynferðislegar syndir hafa fellt marga frá Guði. Margir einhleypir og giftir menn og konur á öllum aldri eru háðir þeim þrám, girndum, ástríðum og freistingum sem krefjast síns tolls og varna þeim að verða það sem Guð hefur ætlað þeim að verða. Þjónusta mannsins nær ekki þroska eða styrk.

Guð hefur lofað þeim sem hann kallar sigurvegara að sitja við hlið hásætis hans. Sigurvegarar eru þeir Guðsmenn sem hafa náð settu marki. Öllum mönnum stendur til boða að ganga inn til fyrirheitna landsins til að þroska líf sitt til hins ýtrasta. Þegar Ísraelsmenn drýgðu hór dóu þeir í eyðimörkinni hnýttir í fjötra siðleysis . Mennirinir deyja enþá daginn í dag hnýttir í fjötra siðleysis og fara á mis við það besta sem Guð hefur fyrirbúið þeim. Það hefur alldrei verið áætlun Guðs að við deyjum í eyðimörkinni...

4) Að freista Krists

Þegar mannfjöldinn heimtaði að Kristur kæmi niður af krossinum freistaði hann hans. Að freista Krists er að biðja Guð um að gera eitthvað sem er gagnstætt vilja hans, eða persónuleika. Enn þann dag í dag leika menn sama leikinn með því að heimta að Guð úvegi þeim aðra leið til frelsis en krossinn. Að ljúga og svíkja í viðskiptum en krefjast um leið blessunar og hagsældar frá Guði er að freista Krists. Karlar og konur sem ástunda lauslæti þótt þau viti að það sé rangt, börn sem hafna guðlegum ráðum foreldra sinna, söfnuðir sem heimta að forstöðumaðurinn byggji upp kirkjuna á félagslífi frekar en Orði Guðs og bæn, eða trúaðir sem vilja fleyta rjómann af frelsinu en jafnframt njóta lystisemda syndarinnar, eru að freista Krists. Þetta líferni hélt Ísraelsmönnum frá fyrirheitna landinu. Og þetta líferni heldur enþá daginn í dag líð Guðs frá því að komast inn í fyrirheitna landið.

5) Möglun...

Þegar orðið möglun er skoðað þýðir það ekkert annað en neikvæð játning. Kvartanir, gagnrýni, aðfinnslur og baktal, allt þetta og meira til flokkast undir mögl. Í fyrsta .Kor.5 kafla er orðið lastmáll, en það orð er ekki notað mikið nú til dags. Lastmáll er sá sem sem slúðrar, blótar og baktalar og Guð ætlast til þess að við tökum á því með festu og aga. (Jak.3:5.. Sjá hversu lítill neisti getur kveikt í miklum skógi..)

Þannig er tungan. Lítil innskot, hárbeittar athugasemdir og kaldhæðni, kveikja að lokum ólökkvandi elda haturs, styrjalda og óvildar. Sambönd leggast í rúst og ekkert verður eftir nema kvöl. Menn mögla við kaffikönnuna gegn vinnustaðnum eða yfirmanninum, og kvarta svo yfir því að þeir fái ekki stöðuhækkun. Þeir mögla gegn predikaranum og undrast svo að börnin þeirra meðtaki ekki fagnaðarerindið. Þeir mögla gegn Orði Guðs og nöldra svo yfir því að þeir sjái ekki trúnna virka í lífi sínu. Þarna er engin merki fyrirheitna landsins sjáanleg..

Þegar við áttum okkur á þessum fimm syndum sem við höfum farið hér yfir að þá eru þær enn höfuðorsök þess að þjónar Drottins fullnýti ekki eigileika sína til fullnustu. Ég trúi því að Guð vilji að við göngum inn til fyrirheitna landsins sem er land hvíldar, blessunar, árangurs, hæfileika og valds. Ég trúi því að Drottinn þrái að við komumst á þennan stað sem okkur er ætlað að vera á sem börn Guðs. Enn því miður eru alltof margir sem veigra um í eyðimörkinni og láta líf sitt þar af því að þeir vilja ekki gera vilja Guðs og ganga inn í þau fyrirheiti sem hann hefur fyrir okkur


hugleiðing á góðum degi sem Guð hefur gefið okkur

Eftir að hafa setið kennslu um opinberunarþekkingu, þá er mér eitt hugleikið.
Þegar Jesús segir við Pétur þú ert Pétur , kletturinn.

Matt 16:13-19
-13- Þegar Jesús kom í byggðir Sesareu Filippí, spurði hann lærisveina sína: Hvern segja menn Mannssoninn vera?-14- Þeir svöruðu: Sumir Jóhannes skírara, aðrir Elía og enn aðrir Jeremía eða einn af spámönnunum.-15- Hann spyr: En þér, hvern segið þér mig vera?-16- Símon Pétur svarar: Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.-17- Þá segir Jesús við hann: Sæll ert þú, Símon Jónasson! Hold og blóð hefur ekki opinberað þér þetta, heldur faðir minn á himnum. -18- Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast.-19- Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum.

Orðið yfir klettur sem Jesús notar í fyrra skiptið er grísk karlkynsorð sem er Petros og þýðir stór klettur.

Síðan þegar hann segir á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína , notar hann gríska kvenkynsorðið Petra sem þýðir gígantískur klettur.

Hann er ekki að segja að Pétur sé Petra eða þessi gígantíski klettur heldur er að hann að segja að kirkjan verði byggð á þeirri opinberun að Kristur sé sonur Guðs.

Því miður að þá heldur ein kirkjan að þarna sé átt við Pétur sjálfan og hafa byggt kirkju sína ofan á gröf hans. Guð miskunni þeim fyrir þá vitleysu.

Jesús er Petra eða þessi gígantísku klettur.

En það sem ég hef verið að hugleiða er þessi lyklill af himnaríki sem Jesús lætur Pétur fá.

-19- Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum.

Það sem er að veltast fyrir mér er að af því Pétur hafði fengið þessa opinberun frá Föðurnum á himnum hver Jesús væri að þá hefði hann fengið fyrstur lykilinn af fagnaðarerindinu. Vegna þess að þegar Heilagur Andi kom yfir lærisveina Jesú á Hvítasunnudag, að þá var það Pétur sem stígur fram með þennan lykil af himnaríki og opnar fyrir dyrum fagnaðarerindisins.

Ég er ekki að segja að Pétur hafi verið lykilinn sjálfur, heldur að Jesús sé lykillinn að frelsun mannanna. En þarna notar Pétur þann lykil sem hann fær.

En Pétur gat samt ekki notað þennan lykil fyrr en á réttum tíma, því að hann hafði fengið hann meðan Jesús gekk enþá um á Jörðinni fyrir golgata. En akkúrat á réttum tíma, réttum stað hefur Heilagur Andi fyllt hann af krafti og djörfung til að stíga fram fyrir mannfjöldan og predika fagnaðarerindið.

Pétur var ekki sami maðurinn fyrir úthellingu Heilags Anda of fyrir. Það þarf bara að skoða þegar það var verið að fara krossfesta Jesú að Pétri skorti kraft og hugrekki til að viðkenna að hann væri lærisveinn Jesú. Ég tel það líklegast að Pétur hafi verið hræddur við þeim viðbrögðum sem hann gæti fengið ef hann myndi játa að hann væri lærisveinn Jesú. En sem betur fer brást hann öðruvísi við en Júdas sem hafði líka svikið Jesú, og grét og iðraðist þessara röngu viðbragða sinna.

Til þess að skilja þennan mun og þessa miklu breytingu sem varð á Pétri þarf að skilja hvað orðið kraftur þýðir.

Orðið er líklega best þýtt sem möguleiki eða geta til þess að geta framkvæmt.

Áður en Heilagur Andi kom yfir Pétur að þá átti hann ekki möguleika að geta framkvæmt það sem hann gat framkvæmt eftir úthellingu Heilags Anda.

Þannig að það hlítur að vera gríðarlega mikilvægt að meðtaka Heilagan Anda inn í líf sitt. Því að fyrsti lykillinn er að fá þá opinberun hver Jesús er, svo er að taka það hlýðniskref að láta skírast og meðtaka Heilagan Anda inn í líf sitt.

Sem þýðir það að Guð sjálfur fer að búa innra með okkur, sem er einungis hægt í gegnum fórnardauða og fyrirgefningu Jesú Krists. Því að Guð getur ekki búið þar sem sem synd er. En þá kemur þessi spurnging hvernig gat Heilagur Andi þá verið með mönnum á dögum gamla testamenntisins þar sem þeir voru ekki endurfæddir til Krists?

Munurinn er sá að Heilagur Andi gekk hliðina á þeim en í dag er hann innra með okkur, Páll postuli segir að við séum musteri Heilags Anda.

þannig að það er mikilvægt að hafa þessa lykla í lífi okkar, Því að án Heilags Anda , opiberast ekki orðið fyrir okkur og án hans getum við ekki framkvæmt nein kraftaverk í Jesú nafni.

Með Heilögum Anda opnast dyr og við förum að geta framkvæmt hltui sem voru ekki mögulegir áður. Það opnast dyr fyrir okkur að sjá fólk losna frá fjötrum og sjúkdómum, og við öðlumst vald sem synir og dætur Guðs að binda verk óvinarins og leysa alla sem eru fjötraðir.

Þess vegna er ég handviss um það að Pétur hefði alldrei þorað að nota þennan lykil af fagnaðarerindinu sem Jesú lét hann fá án Heilags Anda.


hugleiðing dagsins

Landið stendur á skrítnum tímamótum, þar er eins og mikið myrkur og vonleysi sé að yfirtaka landið. Ekkert virðist vera lagast í landinu og glæpir stóraukast.

Svartsýnustu menn hafa spáð því að þriðjungur þjóðarinnar muni yfirgefa Ísland á næstu árum og ástandið fari síversnandi.

En það þarf ekki að vera þannig. Ástæðan fyrir því að landið okkar er á kúpunni er einfaldlega vegna fégræðgi 30 manna sem kollsteyptu landinu. En ábyrgðin kemur að þeim sem minnst eiga að borga skuldir þeirra sem klúðruðu þessu. Í þessu er ekkert sem kallast réttlæti.

Einhvern vegin finnst mér landið okkar Ísland vera að ganga í gegnum hreinsunartíma, spilling og það sem hefur átt sér stað hefur komið upp á yfirborðið og tiltekt er farin að eiga sér stað.

Þetta minnir mig mikið á 12 sporakerfið þar sem fólk þarf að gera siðferðisleg reikningsskil á lífi sínu. Allur skíturinn er tekin upp á yfirborðið og hreinsað til. Síðan er unnið að því að hjálpa fleyrum að ganga í gegnum þennan hreinsunareld til þess að öðlast bata af því sem þau er að berjast við.

Ég trúi því að þótt Ísland standi á erfiðum tímum að þá geti hún leitað í öruggt skjól hjá skaparanum og öðlast innri frið og ró, og fengið visku og kraft til að takast á við það sem er að gerast.

Ég sé enga lausn í því að yfirgefa landið eða taka líf sitt eins og einstaklingar hafa því miður gert út af ástandinu.

Sameinuð sigrum við, en sundruð föllum við...

það er mikill sannleikur í þessum orðum. Þótt ég sé ekki hlyntur vinstri stjórn að þá trúi ég því að ríkisstjórnin sé að gera sitt besta til að sigla út úr storminum.

En hvað var það sem varð Rómaveldi að falli? nákvæmlega það sama og Íslandi, siðleysi og græðgi...


byrjaður að blogga aftur

Það getur verið erfitt að koma sér af stað aftur eftir góða bloggpásu. Ég var vanur að blogga daglega í nokkur ár og því kominn tími á smá pásu í þessu.

 Það er margt sem leikur um huga manns þessa dagana. Þetta hafa verið skrítnir tímar undanfarið og mörg óhöpp dunið á , á stuttum tíma. En einhvern vegin virðist vera allveg sama hvað lífið hefur upp á að bjóða að þá kemst maður í gegnum allt þegar maður er með Guð með sér í liði.

En það sem er efst ú huga mínum núna er hvað syndin er orðin mikil og fólk oft bara orðið dofið fyrir henni og maður eflaust eitthvað sjálfur. Jesús sagði að við værum salt jarðar , ef saltið dofnar , með hverju á að salta þá.

Engin synd er nokkrum manni til blessunar. Biblían er full af leiðbeiningum af því hvað gerist þegar maður er í sínum eigin vilja. Það fer allt í tóma vitleysu. Eflaust gæti maður tekið dæmi um sjálfan sig líka. En ég sé ekki betur að það séu þannig tímar núna að maður fær ekki að komast upp með að gera neitt í leyni, allt verður opinberað.

En afhverju opinberað? Eflaust vegna þess svo að fólk iðrist og sjái allvarleika þess að leika sér að eldinum. Þó svo að margir hafi hrasað undanfarið á einhvern hátt að þá finnst mér mikill sigur vera handan við hornið og miklar jákvæðar breytingar framundan.

Alla vegana hafa þeir tímar verið þannig hjá mér undanfarið að hreinsun og endurmat hefur átt sér stað í lífi mínu. Því að það sem stenst ekki frammi fyrir Guði má ekki krassera í lífi manns. Það sem manni langar að sjá er að allt Ísland frelsist, en það gerist ekki nema maður byrji á sjálfum sér og sé heill í því sem maður er að gera.

En ég rálegg fólki að fela Drottni vegu sína og treysta honum því hann mun vel fyrir sjá :)


1. Þessaloníkubréf

1. Þessaloníkubréf

Tilgangur: Tilgangur bréfsins var að styrkja hina kristnu í Þessaloníku í trúnni og fullvissa þau um endurkomu Krists.

Höfundur: Páll Postuli

Áheyrendur: Hinir trúuðu í Þessaloníku og trúaðir allsstaðar og á öllum tímum.

Bréfið skrifað: Kringum 51, bréfið var skrifað í Korintu og var eitt af fyrstu bréfum Pálls

Umgjörð: Söfnuðurinn í Þessaloníku var mjög ungur. Söfnuðurinn hafði verið stofnaður 2-3 árum áður en Páll ritar bréfið.  Hinir Kristnu í þessaloníku höfðu þörf fyrir að vaxa eða þroskast í trúnni. Það var búið að koma á misskilingi eða ruglingi varðandi endur komu Krists. Sumir héldu að Kristur myndi snúa strax aftur. Þegar fólk lést að þá varð fólk ringlað og líka þegar fólk var ofsótt. Því að þau bjuggust við Kristi fyrirfram.

 

Skref fyrir skref, einn fyrir einn, reittust laufblöðin og tröðkuðust í grasinu og skrefin urðu þyngri.Orð þeirra sem þjónuðu til þeirra bergmáluðu í hugum þeirra. Þau heyrðu verkamenn færast að þeim hræðilega stað þar sem hinir elskuðu voru aflífaðir. Dauði, óvinurinn hafði rifið heit sambanda hjá fólki, fjölskyldna og vina þeirra, og skyldi aðeins eftir minningar... tár og einmannaleika. Enn sólin kemur upp það birtir til og veturinn fer. Sannleikurinn er sá að jarðneskur dauði er ekki endirinn, Kristur sigraði dauðan og það er von um upprisu í gegnum hann.

Eins og með hvern meðlim mannlegrar fjölskyldu, horfðust hinir fyrstu aldar kristnu í augum við dauðan. Mörg mættu dauðanum ung að aldri og lentu í höndum þeirra sem hötuðu Krist og allt sem tengdist honum. Hvort sem það var í hendur afbrýðissamra Gyðinga (Eins og Pál áður en hann endurfæddist) reiðra Grikkja, og ruddalegt yfir vald Rómar, ofsóknirnar fólu í sér steinakast, barsmíðar, krossfestingar, missþyrmingar á borð við að fólk var togað í sundur og dauða. Það að vera fylgjandi Krists meinti að gefa upp allt.                                                                                                            Páll  stofnaði eða kom á fót söfnuðinum í Þessaloníku Í sinni annari trúboðsferð kringum árið 50.Hann ritaði bréfið stuttu seinna til að hughreista hina nýju fygljendur Krists sem voru í þessaloníku.Hann vildi  fullvissa um kærleika sinn , og hrósa þeim fyrir trúfesti sína í gegnum allar ofsóknirnar, og minna þau á von þeirra, að endurkoma Krists ætti eftir að eiga sér stað.

 Páll byrjar bréfið með orð um staðfestu, þakkar Drottni fyrir sterka trú þeirra, og gott mannorð Þessaloníku . (1:1-10). Síðan rifjar Páll upp tengsl sín við þau og hvernig hann kom fagnaðrerindinu til þeirra (2:1-12), hvernig þau tóku við boðskapnum(2:13-16), og hversu honum langaði að vera með þeim aftur(2:17-20).                                                                                                                                        Vegna umhyggju sinnar sennti hann Tímóteus til að hughreysta þau í trúnni (3:1-13).

Páll snýr svo að kjarnanum í boðskap hans-Hvatningu og huggun. Hann skorar svo á þau að fara eftir vilja Guðs í daglegu lífi þeirra og hafna kynferðislegu siðleysi (4:1-8), elska hvert annað (4:9-10), og lifa sem góðir borgarar í heimi sem er þjakaður af synd.(4:11-12).

Páll huggar Þessaloníkumenn með því að minna þá á vonina um upprisuna(4:13-18). Síðan minnir hann þau á að vera ávalt vel undirbúin fyrir endurkomu Krists því hún gæti átt sér stað á hverri stundu. Þegar Kristur kemur aftur munu þeir sem lifa og þeir sem hafa dáið verða reistir upp til nýs lífs(5:1-11).

Páll gefur síðan þessaloníkumönnum handfylli af ráðum til að undirbúa sig fyrir endurkomu Krists: Varar við skurðgoðum(5:14), hughreysta hina huglitlu (5:14), hjálpa þeim veikburða (5:14), vera þolinmóð við alla(5:14), sýna öllum gæsku (5:15), vera ávalt glöð (5:16), biðja stöðuglega (5:17), færa  fram þakkir (5:18), testa (prófa) allt sem er kennt(5:20-21), og forðast allt íllt(5:22).Páll endar bréfið með tvennum blessunum og beiðni um fyrirbæn .

Þegar  þú lest þetta bréf, taktu vel eftir því sem Páll talar um hvernig eigi að lifa hinu kristna lífi og æfðu þig í því. Taktu við voninni og þeirri staðreynd um endurkomu Krists, upprisunni og eiífa lífinu sem bíður þín.


Nýr texti

                                                             Tell them

                                                   Sigvarður Halldóruson 

All around the world, God is searching for a people to go his way.

Go all around the world, tell the people about the love of God to them. 

Tell them about God forgivnes,

tell them about the work of Jesus on Calvary.

 

Everywhere you can see people, trying to go their own way.

 You can see them try to fill their lives with pices from the world .

You can see their hearts are empty. 

 

 

All around the world, God is searching for a people to go his way.

Go all around the world, tell the people about the love of God to them. 

Tell them about God forgivnes,

tell them about the work of Jesus on Calvary.

 

 


hugleiðing líðandi stundar

Það er margt sem leikur um huga manns þessa stundina. Hrun Íslands og tilraunir stjórnvalda til að endurreysa Ísland. En þegar maður hugsar um orðið endurreysn þá hefur maður séð það í lífi margra einstaklinga hvernig líf þeirra hefur breyst til betri vegar þegar þeir hafa hleypt frelsaranum inn í líf sitt.

Fyrir mörgum er það ekki spennandi hugmynd að lifa sem trúaður einstaklingur, vegna þess að hugmynd þeirra af því, hvað það er að vera kristin er ekki allveg sú rétta.

 Róm 8:38-39
-38- Því að ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna, hvorki kraftar,-39- hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum.

Það fyrsta sem hver maður þarf að fá að upplifa er elska Guðs í þeirra garð. Ég tók ekki afstöðu af því að mér fannst það svo sniðug hugmynd allt í einu. Eitthvað hlítur að hafa gerst sem varð til þess að ég byrjaði að breytast og að ég snéri mér að Guði. Ég man vel eftir þessu kvöldi 15 janúar 2000. Þetta kvöld fékk ég beiðni um að hringja áríðandi í vin minn, sem tjáði mér það að einn ógæfu maður hefði nauðgað stelpunni sem ég var með þá. Satt að segja brást ég ekki vel við þessu og áform mín þetta kvöld var ekki fallegt. Því að ég ætlaði mér að fara úr meðferðinni og drepa þennan mann.

En eitthvað gerðist og áður en ég vissi af var ég staddur upp í kapellunni í Hlaðgerðarkoti. Ég hafði þannig séð ekki hugmynd hvað var að ske þegar ég sat þarna. Því að mér fannst ég búin að vera svo vondur og ekki eiga það skilið að fá eitthvað gott inn í mitt líf, og hvað þá það sem ég var að fara gera af mér. En þarna voru svona mannakorn í krukku, yfirleitt eru í kringum 760 mannakorn í hverjum pakka en þarna var krukka með mannakornum og mörg af sumum þannig að þau voru mun fleyrri en 760 stk. Fólkið dró mannakorn og svo var einn sem las þau upp fyrir framan alla. Þegar það kom að mér og lesið þá var eins og ég hefði fengið sleggju í andlitið. Það sem ég heyrði lesið fyrir mig var: Þú skalt ekki hefna þín, því að ég Drottinn Guð þinn ætla að frelsa þig.

Það fyrsta sem kom í hugsa minn hvernig í ósköpunum veit Guð þetta og hvernig gat það gerst að hann myndi tala til mín á þennan hátt? Á svipstundu rann upp fyrir mér allt mitt líf allir þessir röngu hlutir sem ég hafði verið svo duglegur við að framkvæma allt mitt líf, síðan rann upp fyrir mér gæska Guðs og hvað Jesús hafði gert fyrir mig. Þrátt fyrir að hafa ætlað mér að deyða líf annars einstaklings að þá elskaði Guð mig samt og það sem gerðist er að ég brotnaði niður og grét í 4 tíma, þetta bara gat ekki stoppað, það var eins og öll byrði væri tekin af mér og ég væri 1000kg andlega léttari.

Löngunin til að deyða líf þessa manns hún hvarf og ég náði að fyrirgefa honum. Eitthvað sem hafði alldrei gerst áður hjá mér. Löngunin til að taka mitt líf hvarf líka, þar sem ég var búin að standa frammi fyrir því kvöld eftir kvöld að hengja mig og enda þetta, því ég sá ekki tilgang með lífinu. Þarna hófst endurreysn á lífi mínu. En það sem ég vil koma á framfæri er að það var kærleikur Guðs til mín sem varð til þess að ég vildi koma til hans. Ekki reglur eða annað því að á því hafði ég óbeit, sem er reyndar orðið breytt í dag því að ég skil það nú að reglur eru til að veita okkur öryggi.

Málið er það að Jesús er snillingur í að endurreysa líf fólks. Nú þegar allt er í steik í Þjóðfélaginu að þá hlítur fólk að spyrja hvernig það ætlar að byrja líf sitt upp á nýtt. Ég get ekki sagt að líf mitt sé í steik út af þessu hruni sem hefur átt sér stað. Því að allt er að ganga upp hjá mér í dag og mér vegnar vel. En afhverju?

Sálm 37:5
Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.

Svarið er einfalt. Líf mitt er falið í Guðshendur og ég treysti honum fyrir öllum mínum málefnum hvort sem þau eru stór eða smá. Að fara leið Guðs er blessun og veitir öryggi og velgengni allgjörlega óháð því hvernig ástandið er í þjóðfélaginu sem maður býr í. Tala nú ekki um Ísak son Abrahams. Líf hans var helgað Guði og hann uppskar 100 fallt þrátt fyrir að það væri hallæri eða kreppa þar sem hann var. Guð er sá sem tekur eitthvað sem ekkert er og gerir eitthvað úr því. Þegar þú tilheyrir Guði að þá tilheyrir þú ekki þessum heimi og þar af leiðandi ekki hagkerfi þessa heims. Þú tilheyrir þá hagkerfi Guðs þar sem engin kreppa er né skortur. Það er nóg handa öllum.

Er það ekki þess virði að leggja niður stollt sitt og byggja líf sitt á traustum grundvelli sem er Jesús Kristur? Sjáið bara hvernig er farið fyrir landi okkar sem hefur ýtt Guði til hliðar því að menn sögðust ekki þurfa á honum að halda eða trúa á hann.

Orðskviðirnir búa yfir mikilli visku, þar kemur sannleikur sem mörgum reynist erfitt að feysa. Heimskinginn reiðir sig á sitt eigið hyggjuvit. Síðan kemur þessi magnaði sannleikur: Reiddu þig ekki á þitt eigið hyggjuvit, heldur treystu Drottni af öllu hjarta.

Líf sem snýst um það að fara sýna eigin leið hefur ekki skilað miklum árangri fyrir þjóð okkar og líf einstaklinga. En leið Guðs leiðir alltaf til árangurs og velgengni. 


Gullmoli dagsins í dag

Fyrra Pétursbréf 1:3-4

Lifandi von Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum og veitt oss óforgengilega, flekklausa og ófölnandi arfleifð sem yður er geymd á himnum.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband