Kærleikurinn...
16.5.2008 | 09:34
Mig langar að vekja smá athygli á því mikla starfi sem fram fer í Kærleikanum í faxafeni 8 (baka til)
Þar er opið alla virka daga frá 9-18 og lau frá 10-18 , þar getur fólk komið og sókað og hvílt í nærveru Guðs og fengið fyrirbæn oflr.. einnig ef mönnum vantar úrræði eða hjálp til að verða edrú að þá eru allir velkomnir.
Einnig eru samkomur öll virk kvöld klukkan 20:00 Vakningin er byrjuð:)
Svo eru samkomur í Kærleikanum í Keflavík á laugardagskvöldum í Hvítasunnukirkjunni þar...klukkan 20:00... það borgar sig að mæta snemma svo menn geti fengið sæti...
Athugasemdir
Sæll Sigvarður.
Gott hjá þér að vekja eftirtekt á þessu mikla starfi sem fer þarna fram.
Ég á eftir að birtast þar,og vera með.
Gangi þér vel.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 05:17
Sæll Sigvarður.
Dásamlegt að heyra hvað er að gerast í Reykjavík og nágrenni. Vakningin er komin. Hallelúja, Dýrð sé Guði.
Kær kveðja/Rósa.
Rósa Aðalsteinsdóttir, 18.5.2008 kl. 10:43
æði pæði :)
verð að fara að fá mér fasta barnapíu til þess að komast :)
Irma Þöll, 20.5.2008 kl. 17:59
Innlitskvitt
Góða helgiLovísa , 24.5.2008 kl. 11:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.