Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2017
Uppspretta kraftsins í lífi okkar
24.7.2017 | 17:02
Í vestræna heiminum reiðum við okkur á rafmagn. Ef rafmagnið yrði tekið í burtu. Að þá gætum við ekki kveikt ljósin heima hjá okkur. Við gætum ekki kveikt á ofninum til að elda (nema það sé gasofn, en það þyrfti þá að vera til gas í hann) Við gætum ekki fryst eða kælt matinn sem keyptur hefur verið í búðinni. Við gætum ekki kveikt á sjónvarpinu, við gætum ekki notað tölvur, né hlaðið símana okkar, þar sem það væri ekki neitt rafmagn til þess. Við sjáum að við þurfum á rafmagni að halda, til þess að allt þetta fyrir ofan sé í lagi og virki.
Jesús sagði við lærisveinana að þeir myndu öðlast kraft þegar Heilagur Andi kæmi yfir þá. Orðið kraftur þýðir möguleiki eða geta til að framkvæma. Þegar Heilagur Andi kemur yfir þig, að þá geturðu framkvæmt hluti sem þú varst ekki fær um áður. Þú getur lagt hendur yfir sjúka og þeir verða heilir, þú getur framkvæmt kraftaverk, rekið út ílla anda. Talað nýjum tungum oflr.
Kristnir einstaklingar sem hafa ekki tekið á móti Heilögum Anda í líf sitt, og söfnuðir sem hafa ekki kraft Hans. Eru eins og hús án rafmagns. Allgjörlega óstarfhæf, þegar það kemur að því að framkvæma það,sem Jesús býður okkur að gera.
Ertu rafmagnslaus ? Er þá ekki komin tími til að tengja og meðtaka kraft Heilags Anda inn í líf þitt? Eina sem þarf að gera er að biðja Hann um að koma yfir, eða fá handa yfirlagninu frá Andans fylltu fólki.
Með Heilagan Anda í lífi okkar, að þá erum við tengd við uppsprettur lífsins. Það er alltaf nóg handa öllum, það er engin skortur. Lífið verður fyllra og hvern dag getum við sótt í þessar uppsprettur. Með því að lesa í Biblíunni, taka tíma í bæn og dvalið í nærveru Guðs. Það eru forréttindi að vera barn Guðs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki láta aðra gjalda fyrir það sem hefur verið gert á þinn hlut.
21.7.2017 | 22:58
Flestir eða ekki allir, hafa upplifað að vera særð/ir. Einhver hefur gert á hluta okkar, og við á annara. Tökum dæmi lítið barn verður fyrir því að það er reynt að taka líf þess þegar það er 4 ára. Það upplifir höfnun fyrir lífinu, og það sé ekki velkomið í þennan heim. Seinna meir lendir sama barnið í aðstæðum þar sem það er varnarlaust og getur ekkert gert til að hjálpa móðir sinni, þar sem verið er að brjóta ílla á henni. Barnið upplifir, ég er ekki nógu góð/ur til að geta verndað mömmu sína. sami maður læsir barnið inn í skápum og herbergjum og sviftir það frelsi. Barnið upplifir að það sé einskis virði og aftur nær höfnunin yfir lífinu tökunum.
Barnið verður reitt og heitir því, að maðurinn sem framdi þetta muni þurfa að borga fyrir það sem hann gerði með lífi sínu. 5 ára gamalt barn sem veit ekki betur, hefur ásett sér að taka líf mannsins.
Allveg sama hversu mikið barnið reynir að láta manninn gjalda fyrir það sem hann gerði. Að þá mun maðurinn aldrei geta gefið barninu sakleysið sitt aftur, maðurinn mun alldrei geta gefið barninu barnæsku sína aftur.
Sama gildir með annað í lífinu, við getum ekki gefið fólki aftur það sem við höfum tekið af lífi þeirra, né þau okkur.
Hvað er þá til ráða ? Ef hefnd er engin lausn og gerir málin bara enn verri. Hvað eigum við þá að gera ? Það er til betri leið, en að hefna sín. Það heitir að fyrirgefa. Litla barnið sem ég nefndi er ég sjálfur. Ég valdi það að fyrirgefa honum, og fór ákveðna leið til þess. Í dag er ég frjáls gagnvart honum, og hef verið í mörg ár. Síðast þegar ég sá hann, að þá var ekkert hatur í garð hans, engin reiði, né ótti við að umgangast hann. Ég er frjáls frá þessu.
Það er bara einn sem getur og hefur gert, að gefa mér það til baka það sem var tekið af mér í barnæsku. Guð er sá eini sem getur gefið okkur það sem hefur verið tekið frá okkur, hann geldur okkur tvöfalt það sem við höfum farið á mis við í lífinu.
Ég áttaði mig á því, að þegar ég er í kringum lítil börn að þá opnast hjarta mitt og ég fæ að upplifa barnæskuna aftur. Það hljómar kannski skrítið að segja svona, en þetta er satt. Börn eru einlæg yndisleg og svo hrein, og auðvelt að sýna þeim kærleika. Þau draga fram það besta í okkur. Ég upplifi lækningu á barnæskunni á þennan hátt, það má vera að aðrir upplifi það á einhvern annan hátt.
Hví að lifa í fangelsi ófyrirgefningar, þegar við getum verið frjáls? Ef einhver særir okkur, að þá endurspeglum við það stundum með því að særa á móti, eða annað fólk. Til dæmis stelpa sem hefur verið í sambandi þar sem ílla var farið með hana, og hún jafnvel særð. Hún kynnist svo öðrum manni sem er góður við hana, þar sem hún hefur ekki gert upp gagnvart þeim sem hún var með, að þá er hegðun hennar brotin, og góði maðurinn fær að gjalda fyrir þau mistök sem sá slæmi framdi. Þess vegna þurfum við svo mikið á fyrirgefningu að halda, til þess að við séum ekki að láta annað fólk gjalda þess, sem fólk úr fortíð okkar hefur gert okkur til saka. Setjum fangana frjálsa og veljum að fyrirgefa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppáhalds kristilegu myndirnar mínar
11.7.2017 | 12:46
1. Passion of the Christ
2. The Shack
3. War Room
4 Heaven is for Real
5. Hackshaw Rigde
6. Fireproof
7. God´s Not Dead 1-2
8. Left Behind series
9. Jerusalem Countdown
10. Facing the giants
11. Joseph: King of Dreams
12. Narnia
13. Sin Eater
14. The Green Mile
15. Time Changer
16. Revelation Road
17. The Omega Code
18. China Cry
19. The Miracle Maker
20. Son of God
21. The Climb
22. The Gospel of John
23. Apostle Paul
24. The Mark
25. The Perfect Stranger
26. Amazing Grace
27. Faith like Potatoes
28. Pilgrim's Progres
29. No greater love
30. Apostle Peter
31. Exodus: Gods and Kings
32. Holy Ghost
33. Machine Gun Preacher
34. Captive
35. Risen
36. Superbook
37. Samson
38. The Bible: Mini Series
39. Krossinn og Hnífsblaðið
40. Ben Hur (2016)
41. Hells Bells: The Dangers of Rock N Roll
42. Veggie Tales
43. Beyond the mask
44. Rapture: The Final
45. The Case for a Creator
46. The Case For Christ
47. Miracles from Heaven
48. Tribulation
49. Encounter
50. Lay it Down
það er hellingur af myndum sem ég á eftir að sjá, og því gæti þessi listi breyst eitthvað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)